296 VILM. JÓNSS.: LYFJAVERZL. Á ÍSLANDI. [vaka] Hvernig svo sem litið verður á þessar tillögur mínar, skil ég heldur ekki, að orðið geti neinn pólitískur ágreiningur um þær. Þær snerta ekki deiluna um fi-jálsa og ófrjálsa verzlun. Lyfjaverzlunin á íslandi e r þrælbundin, og mér vitanlega er enginn ágreiningur um það, hvorki á íslandi né annars staðar á Norðurlönd- um, að hún verði að vera það. Hér er því ekki um það að ræða, h v o r t eigi að binda hana, heldur h v e r n i g eigi að gera það. I maí 1929. Vilm. Jónsson.