[vaka] JARÐARFÖRIN. 313 flöskur af öli í staðinn fyrir kaffið. Mér fannst ég þurfa að skola sorgina vandlega burt úr mér, eins og sápu úr fati, sem búið er að þvo og á að fara að þurrka og gera skitugt aftur. Ólafur Marteinsson. LJÓÐAÞÝÐINGAR. I. FÁTÆKUR MUNKUR FRÁ SKÖRUM. (G. Fröding). Nú hnignar fjöri, nú förlast verk hjá fátækum, ólærðum strokuklerk, munki á flóttaförum fordæmdum nið'r í Skörum'. í kör hefir ellin mig kreppt og fellt og kirkjan þeim vonda mig ofurselt sem drápsmann og trúvilltan syndasauð og sekan og dræpan mig kongurinn bauð. Þeir síðan hafa elt mig sem úlfinn í skóg, að armur minn Lassa kórsbróður sló. En hettuna eina þeir hrepptu, sem höfði mínu eftir kepptu. Ég syndgaði í klaustrinu, satt það er, og sopa ofmargan fékk ég mér í óleyfi úr ábótans tunnu og átti vingott við nunnu.