[vaka] ÚR BYGGÐARSÖGU ÍSLANDS. 335 an Laxá*). Er það bærinn á Höskuldsstöðum, því Lax- dæla segir, að Höskuldur, sonur Kolls, hafi tekið við búinu eftir föður sinn andaðan, og sé bærinn síðan við Höskuld kenndur. Landnám Kolls náði yfir Laxárdal allan og þó meira land. Að vestanverðu má ætla, að landnám hans hafi náð alla leið að Ljá, og Landnáma segir, að hann hafi numið að simnanverðu allt til Haukadalsár* *). Hvórki Landnáma né Laxdæla geta þess, hve langt upp með Haukadalsá landnám hans hafi náð. En Njála lætur Höskuld Dala-Kollsson segja, er hann biður Unnar Marðardóttur til handa Hrúti bróður sínum, að Hrútur skuli hafa til fjárfélags með henni m. a. Kambsnes ok Hrútsstaði ok upp til Þrándargils"***). Nafnið Þránd- argil er eim þekkt. En Þrándargil er inni i Laxárdal, langt fyrir innan Höskuldsstaði. Ef Hrútur hefði átt að eignast land inn að því, hefði hann því m. a. eignazt Höskuldsstaði, sjálft ábýli Höskulds, og er sýnilega eitthvað málum blandað í þessari frásögn. Sigurður Vig- fússon gat þess til, að Þrándargil væri ritvilla fyrir Hrútagil, en svo heitir gil, sem gengur úr fjallinu, milli Köldukinnar og Skógsmúla, suður í Haukadalsá****). Taldi hann landnám Kolls hafa náð þangað. Ekki er það líklegt, að Hrútagil hafi ráðið þessum merkjum. Hin eðlilegu mörk á þessu svæði eru við Þverá, sem enn ræður merkjum Köldukinnar, Skógsmúla og Þorbergs- staða, er land eiga þar innfrá, að vestan, og Vatns í Haukadal að sunnan, en Vatn var ekki i landnámi Kollsf). Má því ætla, að landnám Kolls hafi náð suður að Haukadalsá og Þverá. Neðri hluti þessa landnáms nær því yfir lönd þessara jarða, Köldukinnar, Þorsteins- *) Laxd., k. 5. ) Land. II. 18. **) Njála, k. 2. ***) Árb. Fornl.fél. 1882, 92. t) Landnáma II. ¦ 17.