::'« ólafur lárusson: rvAKAj staða fremri og ytri, Læk.jarskógs, Hrútsstaða, Þorbergs- staða, Kambsness, Saura, Sauðhúsa, Höskuldsstaða, Horn- staða, Leiðólfsstaða, Goddastaða, Hjarðarholts, Hrapps- staða, Fjósa, Spágilsstaða og Vigólfsstaða. Auk þess eru nú tvö ný býli á þessu svæði, Skógsmúli, byggðiir á 19. <>ld ofanverðri, og Brautarholt, byggt á þessari öld. Eru þetta alls 20 býli og eru þau öll byggð nú á tímum. Hrútsstaðir eru nýlega byggðir úr auðn, síðan á 18. öld. Samtals voru jarðir þessar 302 hundruð að fornu mati. Laxdæla segir, að Kollur hafi fengið Þorgerðar hið sama vor, er Unnur setti bú saman í Hvammi*). Guð- brandur Vigfússon hefir talið, að Unnur hafi komið út um 892**). Höskuldsstaðir ættu því að hafa byggzt skömmu eftir þann tíma. 4050 árum seinna kemur dalurinn næst við sögur. Voru þá tveir bæjanna, er áð- ur voru nefndir, vestan árinnar, byggðir, Goddastaðir og Hrappsstaðir. Á Goddastöðum bjó Þórður goddi, en Hrappur Sumarliðason á Hrappsstöðum. Laxdæla segir, að þeir hafi verið nábúar, og hafa því engar jarðir ver- ið byggðar þar á milli. Báðir sýnast þeir hafa verið rík- ir bændur. Þórður er sagður hafa verið auðmaðr mik- ill" og báðir voru þeir í mægðum við hinar göfugustu ættir, Þórður við Hvammverja, en Hrappur við Þórsnes- inga***). Eftir dauða Hrapps, nálægt 950, lögðust Hrappsstaðir í eyði****), og lágu löndin í eyði, þar til Ólafur pá keypti þau, nokkru eftir 960, af Þorkeli trefli, er þá hafði erft þau. Ólafur reisti svo bæinn í Hjarðarholti, í landi Hrappsstaða, um 90 árum síðar en byggð íslands hófstf). Segir Laxdæla, að það væru víðar lendur ok fagrar ok mjök gagnauðgar" er Ólafur keypti af Trefli. *) Laxd., k. 5. **) Safn II, 225. **) Laxd., k. 1011. **) Laxd., It. 17. f) Laxd., k. 24.