338' ÓLAKUR LÁRUSSON: [vaka] Hrappsstaðir sjálfir lágu enn í eyði, er Laxdæla var rit- uð*), en voru síðar byggðir upp, og þá sem hjáleiga frá Hjarðarholti. Fjós, sem einnig eru hjáleiga þaðan, munu eigi heldur hafa verið byggð fyr en löngu síðar. Hvor- ugra þessara býla er getið í- bréfum eða gjörningum fyrir 1550. Spágilsstaðir óg Vígólfsstaðir eru báðir göm- ul lögbýli, þó þeir í jarðabókum séu oft taldir hjáleigur frá Hjarðarholti. Nöfnin benda til þess, að báðar séu jarðir þessar nokkuð gamlar, en fyrst er þeirra getið í máldaga Hjarðarholtskirkju um 1355**). Hvorug er jörð þessi nefnd í Laxdælu og virðist mér sennilegast, að þær hafi eigi byggzt fyr en eftir árið 1000. Land þeirra 6 jarða, sem nú eru vestan Laxár, í þessum hluta af landnámi Dala-KoIIs, sýnist því hafa skiftzt aðeins milli tveggja jarða, á söguöldinni. Þá komum vér því næst að byggðinni fyrir sunnan: ána. Er það þá fyrst til frásagna, að Hrútur Herjólfs- son, hálfbróðir Höskulds, kom út, og heimti móðurarf sinn af Höskuldi. Höskuldur vildi eigi greiða i'it féð, og gerði Hrútur scr þá bæ á Kambsnesi, í landi Höskulds. Gerðust síðan nokkrar greinir með þeim bræðrum, en þó sættust þeir að lokum. Laxdæla segir ekki, hver sætt- in var, en getur þess, að Hrútur hafi þokað bústað sín- um eftir sættina og búið til elli þar sem síðan heitir á Hrútsstöðum***). Sögnin um þessa erfðaþrætu hefir líka geymzt í Landnámu, og er þar skýrari en í Laxdælu, að því. leyti, að Landnáma segir, að Höskuldur hafi gold- ið Hrúti í móðurarf sinn Kambsnes land milli Hauka- dalsár ok hryggjar þess, er gengr or fjalli ofan í sjó"****). Hrútur hefir því fengið landið allt fyrir sunnan ásinn milli Haukadalsár og Laxárdals. Bev þessu vel saman við *) Laxd., k. 10. ) Dipl. Isl. III., 65. *?) Laxd., k. lí). ***) Landn. II. 18.