340 ÓLAFUR LÍRUSSON: [vaka] ann. Síðan lét Þorleiknr gjöra bæ á Kambsnesi, at landamæri þeirra Hrúts ok Höskulds"*). Þegar Hrútur flutti að Hrútsstöðum, het'ir bær hans á Kambsnesi farið í eyði, og Höskuldar haldið því landi. Nú var gjörður þar bær af nýju, Kambsnes það, er síðan hefir verið, og byggður úr Höskuldsstaðalandi. Nú á tímum eru lönd tveggja jarða á milli Kambsness og Höskuldsstaða, Saura og Sauðhúsa. Þær jarðir hafa hvorugar verið byggðar, er þetta gjörðist. Þær eru yngri. Saura er fyrst getið í í máldaga kirkjunnar í Sælingsdalstungu 1327**), en Sauðhúsa í brcfi 1410***). Hvenær bæirnir næstu fyrir innan Höskuldsstaði, Hornstaðir og Leiðólfsstaðir, hafi byggzt, verður ekki ráðið af sögunum. Laxdæla segir að visu, að Þorleikur hafi sett Kotkel niður á Leiðólfsstaði****), en öll sögn- in um Kotkel er svo skáldsögukennd, að ekki er vert að byggja mikið á henni. Af þessu sést þó, að Leiðólfsstaðir eru byggðir áður en Laxdæla var rituð, Hornstaðir eru nefndir í Sturlnngu. En þó að báðar þessar jarðir hefðu verið byggðar á dögum Höskulds, þá hal'a þeir frændur fjórir, Höskuldur, syiiir hans og Hrútur, búið á Jajidi, sem á síðari öldum hcfir skiftzt á milli 15 jarða, alls 242 hundruðum að fornu mati. Er það 60 hundraða á- býli handa livorum. Var þó ábýli Dala-Kolls stærra, og Höskulds, áður cn hann skifti landinu. Það gefur að skilja, að svo miklar lendur báru mikil bíi, og að bænd- urnir á þeim voru stærri bændur en hinir, er sátu á jörðunum seinna, eftir að þeim hal'ði verið skift. Það má auðvitað segja, að nota verði þessar frásagnir Laxdælu með allri varúð, og hæpið sé, hvort mikið mark megi á þeim taka. En mcr virðist, að þær hafi það ein- ) Laxd., k. 25 sbr. k. 20. ) Dipl. Isl. II., 383. ) Dipl. Isl. III., 011. "*) Laxd. k. 30.