354 ÓLAFUR LARUSSON: [vaka] árvallasýslum. Hinn l'lokkur nafnanna, sá er að byggð lýtur, er líklegri til að veita einhverja fræðslu um það efni, er hér ræðir um. I þeim flokkinum má i'remur bú- ast við, að gæti ólíkrar nafngjafavenju mismunandi tima. Algengustu nöfnin í þessum flokki eru: -staðir ......... 1165 nöfn - k o t ............. 765 - g e r ð i .......... 335 - h ú s ............ 321 -sel............. 197 -bær ............ 174 -land ........... 82*) - b ú ð ............. 80 Ömiur nöl'n, eins og -gata, -naust, -tópt; -tröð, -lún o. s. frv., eru færri. Þegar nú það er athugað, hvernig þessi nöfn skiftast á héruð landsins, þá kemur í ljós eftirtektarverður mun- ur á þeim. Sumum nöfnunum er nokkurn veginn jafn- skift á héruðin, öðrum mjög misskift. S t a ð i r eru dreifðir, nokkurn veginn jafnt um allt landið. Þó eru þeir nokkuru i'ærrj en réttri tiltölu svari, á Suðurlandi (Austur-Skaftafells- til Gullbringu- og Kjósarsýslu), á Snæfellsnesi og Vestfjörðum og í Eyja- firði. I öðrum héruðum eru þeir í'leiri, en tiltölu svari. Hvergi er munurinn samt mikill. Fæst eru nöfn þessi í Rangárvallasýslu (4,8% á móti 7,3% allra nafna) og í Snæfellsnesssýslu (2,6% : 5,2%), en flest í Hiinavatns- sýslu (11,3% : 7,5%) og í Norður-Múlasýslu (7,4% : 3,8%). Bæir eru lika nokkuð jafnl dreifðir um landið allt. Þeir eru fleiri, en tiltölu svari, i sveitunum austan frá Lónsheiði og vestur að Hvítá í Borgarfirði, á Snæfells- nesi, í ísafjarðarsýslu og í Þingeyjarsýslum. í öðrum *) l'ar með talin nöfnin -lenda og -lendi.