lVaka] ÚR BYGGÐARSÖGU ÍSLANDS. 363 en býlum, t. d. beitarhúsum og þess háttar*). Bærinn í Hvammi hefir i'arið í eyði. Bæjarrústin hefir verið nefnd Hvammkot, og það nafn hefir svo fests við bæinn, er hann var hyggður upp aftur. Nokkuð víða verður það séð, að býli þessi hafa legið í eyði um hríð, og önnur af býlum þessum þekkja menn yfirleitt ekki með slíku nafni, nema sem eyðibýli. Flest -kotin, sem kunn eru á Vestfjörðum, eru nefnd því nafni fyrst í jarðabók Árna Magnússonar. Var allur þorri þeiri'a þá í eyði, og hafa eigi byggzt aftur. Fáein af þeim eru talin hafa verið lögbýli. Þeirra er þá sumra getið áður með öðru nafni. Árni nefnir t. d. eyðibýlið Vogsbotnskot í Reykhólasveit. Það er sama jörðin og nefnd var Vogsbotn á 15. öld**); heí'ir hún Hklega aldrei verið byggð með kot-nafninu. Likt mun mega segja um i'lest -kotin hin á Vestf jörðum. í sambandi við þetta má geta þess, að orðið kot er einhig notað í bæjanöfnum hér á landi með nokkuð öðrum hætti. Stundum er það haft í upphafi nafns, t. d. Kothvammur, Kotströnd. Það kemur í Ijós, um þessi nöfn, að þau sýnast oftast vera höfð til aðgreiningar hýlinu frá annari jörð stserri, sem þar cr einhver.sstað- ar í grennd, t. d. Kotey í Meðallandi, til aðgreiningar frá Efri-éyj Kotmúli í Fljótshlíð til aðgreiningar frá Ey- vindarmúla, Kotvöllur í Hvolhrepp til aðgreiningar frá Velli, Kotbrekkur á Rangárvöllum til aðgreiningar frá Brekkum, Kotferja í Flóa til aðgreiningar frá Kirk.ju- ferju í Ölfusi, hinumegin Ölfusár, Kotlaugar í Hruna- mannahreppi til aðgreiningar frá Laugum, Kotströnd í Ölfusi til aðgreiningar frá stórbýli í næstu sveit, Strönd í Selvogi, Kotvogui' í Höfnum til aðgreiningar frá Kirkjuvogi, Kothraun í Helgal'ellssveit til aðgreiningar frá Berserkjahrauni, Kotnúpur í Dýrafirði til aðgrein- ) Af l>ví leiöir það, að á sumum þcirn stöðum, sem nefndir eru kof, Jiafa aldrei býli verið. **) Dipl. ísl. IV., bls. 685.