[vaka] ÚR BYGGÐARSÖGU ÍSLANDS. 369 orði. Vér höfum kennt því um þær breytingar á lifshög- um þjóðarinnar, er vér höfum talið vera til hins verra, og kennt því það ranglega. Þær eru mannaverk fyrst og fremst og tvísýnt stundum, hvort þær eru svo mjög til hins verra, sem ætlað er. Vér höfum nítt það í verki, en þrátt fyrir alla rányrkju bíður það enn eftir hundruð- um og þúsundum nýrra heimila, sem það getur veitt sæmileg lífskjör. Jarðræktin hér í nágrenni Reykjavíkur, á Blikastöðum, á Korpúlfsstöðum, á Vífilsstöðum og víðar, sýnir að gera má nálega hvert kot að stórbýli, sé því sómi sýndur og það numið til ræktar en ekki ráns. ólafur Lárusson. 24