[vakaj SONGLIST ISLENDINGA. 379 arholti við Credo" Grallarans á hátíðum; var það lengi í minnum haft, hve sá söngur hefði verið fagur. Þeir Pétur Guðjohnsen og síra Bjarni Þorsteinsson hafa báðir ymprað á því, að lúthersku lögin muni aldrei hafa verið sungin hér á landi eins og þau standi í nótna- bókunum. Þetta tel ég tvímælalaust rétt og ég þykist hafa fært frekarí ástæður fyrir þeirri skoðun. Að þau voru prentuð upp aftur og aftur í öllum útgáfum Grall- arans, getur stafað sumpart af því, að það hafi þótt gefa stuðning öllum þeim söngmönnum, sem eitthvað þekktu nó.tur. Þeir gátu þó að minnsta kosti, eins og gamli Jón Bergþórsson í Ljárskógum ~ sem alltaf söng á Grallar- ann fram undir 1880 sagði, séð hvar átti að hækka sig eða lækka; en sumpart af því, að með þessu átti að sýna og sanna, að þjóðin notaði siðabótarlögin hin einu réttu Lúthers-lög, samboðin hinni hi-einu og kláru" kenningu hans. Jón Jónsson, læknir.