ívakai RITFREGNIR. :i9ó því. Mér þykir líklegt, að Jakob haí'i byrjað þessa sögu glottandi, eins og nafnið bendir til, ætlað að leika sér að Dýrrin eins og köttur að mús. En með veikleika sínum sigrar him, vekur riddaralegar tilfinningar i brjósti hans, og bæði vaxa við sögulokin og sýna sitt mannlegasta eðli. Því að kaldranaskapurinn er ekki að- al Jakobs Thorarensens. Hitt mun sönnu nær, að hann sé manna viðkvæmastur, svo viðkvæmur, að honum hafi sjálfum þótt nóg um og heldur kosið að brynja sig með grálegu glotti að hcgóma lífsins en bera klökkva sinn út á stræti og gatnamót. En héðan af er honum ekki hætt við neinum voluskap, þó að hann verði nokkuru örlátari á tilfinningar sínar. Og þessi bók bendir til þess, að með nýju listarformi sé hann líka að ryðja sér braut til auðugra og dýpra skilnings á þeim rökum lífsins, sem ekki verða fundin, nema maðurinn sé a 1 1 u r í leitinni. S. N. MÝNDIR ÚR MENNING,ARSÖGU ÍSLANDS A LIÐN- UM ÖLDUM. Útgefendur Sigfús Blöndal og Sigurður Sig- tryggsson. Reykjavík 1929. Utgefendur rits þessa hafa safnað saman í því nokk- uð á annað hundrað myndum, er lúta að ýmsum þátt- um i menningu þjóðarinnar frá landnámstíð og allt fram á fyrri hluta 19. aldar. Eru þar myndir og upp- drættir af húsum og húsaskipun, húsgögnum og verk- færum, fatnaði, vopnum og kvenskraúti, hofrústuin, kirkjum og kirkjugripum, handritum, bókaprenti og bókbandi, hljóðfærum, þingstöðum, skipum, verzlunar- stöðum, ferðalögum og reiðtýgjum, dysjum og jarðar- förum. Má af þessu yfirliti sjá, að víða er komið við í bókinni. Myndirnar eru sumar myndir af forngripum í Pjóðmenjasafninu og í erlendum söfnum, aðrar eru teknar úr gömlum handritum islenzkum og úr erlend- um ferðabókum um ísland. í inngangi að ritinu gefa útgefendurnir stutt, en skihnerkilegt og fróðlegt yfirlit yfir íslenzkar menningarmenjar frá liðnum öldum, og aftan til við bókina eru skýringargreinar um hverja ein- staka mynd. Bókin hefir því að geyma mikinn fróðleik um menningarsögu vora auk myndanna. Prentun og pappír er hvorttvegg.ja mjög vandað. Bókin er öll hin