396 RITFREGNIR. [vaka] eigulegasta og er vonandi, að hún nái tilgangi sinnm, en hann er sá irá útgefendanna hálfu, að reyna að vekja athygli og skilning manna á menningu þjóðar- innar þau þúsund ár, seni hún hefir lifað lífi sínu í blíðu og í stríðu. Myndavalið sýnist útgefendunum yfirleitt hafa tekizt vel, og þeir munu hafa náð sýnishornum af flestu því, er sýnishorn eru til af. Að hvoru tveggja því, sem hér kemur til greina, forngripum og gömlum myndum, er- um vér fátækari en flestar menningarþjóðir aðrar, og fornar byggingar eru engar við líði hér á landi. Samt er furðulegt, hve margt hefir geymzt, er litið er á allar að- stæður. Það er t. d. merkilegt, að elztu byggingaleifar úr timbri, úr íbúðarhúsum, sem til eru á Norðurlöndum, skuli hafa geymzt hér, þiljurnar frá Möðrufelli. Og margt af því, sem hér hefir geymzt, er merkilegt að ýmsu. Myndirnar sumar í þessari bók sýna það til dæm- is ágætlega, hve frábærlega hagir menn hafa verið til hér á landi bæði í málmsmíði, útskurði og útsaum. Þá eru og í bókinni nokkrar upphafsstafamyndir úr hand- ritum, sem sýna, hve frábærlega menn hafa verið hagir i dráttlist. En auk þess sem þessir fornu gripir og myndir bera vott um hagleik og listfengi þeirra, er þá gjörðu, þá hafa þeir sitt menningarsögu-gildi þar fyrir utan, og varpa ljósi á ýms atriði i lífi þjóðarinnar, sem önnur gögn segja ekki frá. Þess vegna eiga útgefendur ritsins þakkir skilið fyrir að hafa komið fyrir almennings sjónir jafn góðu yfirliti um þetta efni og þessi bók er.. Ó. L. LEIÐRÉTTINGAR. A bls. 27.r> i 12. ]. a. n.: tal, les: tala. 281 í 1S. 1. a. o.: salfsýrusúrt naírium, les: salicylsúrt natrium. 281 í 5. 1. a. ii.: ])ó, les: þá.