Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Blaðsíða 16

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1945, Blaðsíða 16
Tímarit Iðnaðarmanna 3. XVIII 1945 Frá Sambands-skrifstofnmii Eins og Sambandsfélögunum er kunnugt, á næsta ISnþing, hiS 8. í röðinni, að koma samari í Reykjavík laugardaginn 20. okt. n.k. Stjórn Landssambandsins leggur 17 mál fyr ir þingið, eins og skýrl er frá i þingboði dags. 11. júli s.I. Þetta eru mjög mikilsverð mál, er ræða þarf og ráða verður fram úr. Það er því nauðsynlegt að þingfulltrúarnir liafi kynnt sér þau og myndað sér skoðanir á þeim, þegar á þing kemur. Á miklu veltur fyrir framtíð og afkomu iðnaðarmanna, hvernig þessum málum verð- ur til l}rkta ráðið. Mál, er einstakir félagar eða félög óska að verði tekin fyrir á þinginu, skulu koma til Sambandsstjórnarinnar ekki síðar en 14 dög- um fyrir þing. (Sbr. 11. gr. Samb.laganna). Áríðandi er að Jiessu sé fylgt, svo að liægt sé að undirbúa slík mál rækilega fyrir þingið. Þá er og áríðandi fyrir skrifstofuna, að tilkynnt sé fyrir sama tíma, hver eða liverj- ir séu kosnir fulltrúar á þingið. Samkv. 19. gr. Sambandslaganna, skal bvert félag í Sambandinu senda Sambandsstjórn- inni skýrslu um starf sitt, fjárhag, meðlima- fjölda og atvinnuafkomu félaga sinna siðast- liðið almanaksár, og sé skýrslan komin til Sambandsstjórnar fyrir 31. marz ár hvert. Þegar þetta er ritað, (6. sept.) vantar enn skýrslu frá 31 félagi, aðeins 13 hafa skrifað. Ekki er nú frammistaðan til fyrirmyndar! Vegna ýmsra fyrirspurna, er skrifstofunni berast, er þetta mjög bagalegt, og Sambands- félögunum til skammar. Er það svo yfirgripsmikið verk að semja þessar skýrslur og senda þær, að þvi sé ekki hægt að ijúka á 6 mánuðum, eða er jjetta slóðaskapur, sein iðnaðarmenn almennt eru farnir að temja sér? Væri nú ekki ráð fyrir þau félög, sem eiga eftir að senda skýrslur, að reka slóðaskap- inn á dyr, eða eftirláta liann öðrum, og senda skýrslur um störf sin tafarlaust. G.H.Þ. Sigurðnr Halldórsson trésmiðameistari 70 ára Það var gest- kvæmt á heimili þeirra hjóna í Þingholtsstræti 7 10. júlí s.l. Til þess að vera viss- ir um að verða fyrstir mættu for- ystumenn iðnað- armanna kl. 10 f. h. Eftir innileg handtök og árnað- aróskir var setzt að kaffiborði og er kökur frú Ingibjargar liöfðu lilotið Iiæfileg- ar aðgerðir og margt vinar- og gleðiorð fall- ið til beggja hjónanna, flutti formaður Iðn- aðarmannafélagsins stutta ræðu og gat með hlýjum orðum Iielztu starfa, sem Sigurður hefur um langa æfi unnið fyrir málefni iðn- aðarmanna i jiessu landi. Ilann afhenti Iion- um jafnframt áletraðan málmskjöld af Jóni forseta,'en hugsjónum lians og afrekum liafa þau hjón ætíð fylgt dyggilega. Brátt komu svo fulltrúar Fríkirkjusafnað- arins með árnaðaróskir og minningargjöf. Þannig leið allur afmælisdagur þessa mæta iðnaðarmanns. Straumur vina og samstarfs- manna lá að heimilinn fram á nótt, sem á- samt 200 heillaskeytum, bar fyllsta vott um að þarna, í Þingholtsstræti 7, á iðnaðarmanna- stéttin mætan og virðulegan fulltrúa, ekki einungis á sviði liennar eigin málefna, heldur einnig hverskonar annara menningarmála þjóðarinnar. Timaritið gat Sigurðar lítillega er liann var kjörinn heiðursfélagi Iðnaðarmannafélagsins. Hann er vel ern og gengur til vinnu sinnar sem ungur væri. Ég óska þeim hjónum allr- ar blessunar og vona að hitta jiau glöð og hress margoft framvegis. 50 S. J.

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.