Veðrið - 01.09.1962, Blaðsíða 3

Veðrið - 01.09.1962, Blaðsíða 3
VEÐRIÐ TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI KEMUR ÚT TVISVAR Á ARI - VERÐ ÁRG. KR. 40.00 2. HEFTI 1962 7. ÁRGANGUR RITNEFND: JON EYÞORSSON FLOSl H. SIGURÐSSON PÁLL BERGÞORSSON HLYNUR SIGTRYGGSSON AFGREIÐSLUSTJÓRI: GEIR ÓLAFSSON DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131 JÓN EYÞÓRSSON: Stjörnutuminn á Lambhúsum og Rasmus Lievog Árið 1779 skipaði Kristján konungur 7. svo fyrir, að einn a£ aðstoðarmönnum stjörnuturnsins í Kaupmannahöfn skyldi setjast að á íslandi til þess að gera þar stjörnumælingar og veðurathuganir. Sá hét Rasmus Lievog, norskrar ættar. Hann dvaldist hér á landi í 26 ár (1779—1805), en sneri þá heim aftur. Samtíðarmenn íslenzkir kölluðu hann stjörnuskoðara. Embættistitill hans var Observator Lievog. í Landsbókasafni (I. B. 234 A, 4to) eru skráðar veðurathuganir Lievogs fjórum sinnum á sólarhring hverjum: Frá 10. ágúst 1779 til 24. des. s. á. á Bessastöðum. Frá 25. des. 1779 til 30. júní 1780 á Lambhúsum. Frá 1. júlí 1780 til 30. júní 1785 á Lambhúsum. Næst kemur stutt yfirlit yfir athuganir 1. júlí 1787 til 31. des. 1788 á Lambhús- um. Er þar tilgreint í hverjum mánuði liæsta og lægsta loftvægi og hitastig. Því næst kemur kafli með stjörnumælingum, þá veðráttuyfirlit yfir árið 1789 og loks stjörnumælingar til bókarloka. — í öðru bindi I. B. 234 B, 4to eru eingöngu stjörnumælingar. í Konungsbókhlöðu er til heill árgangur af daglegum athugunum Lievogs, 1789. Eins og sakir standa, veit ég því um 6i/2 Áfgang af veðurbókum Lievogs. Þær eru vandlega skráðar og virðast vandlega gerðar. Þrátt fyrir talsverða fyrir- höfn hefur mér ekki tekizt að rekja upphaf eða æviferil Lievogs, en oft er hans. og stjörnuturnsins á Lambhúsum getið í Lovsamling for Island og í embættisbréf- um stiftaintmanna. I bréfum þessum endurspeglast greinilega hin landsföðurlega stjórnsemi oss til handa frá kóngsins Kaupinhöfn og hins vegar hin erilsama og smámunalega nákvæmni i embættisstörfum stiftamtmanna, en þeir skyldu hafa eftirlit með stjörnuskoðaranum og verkum hans. Yrði of langt mál að rekja þær lieimildir VEÐRIÐ -- 39'

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.