Vikan - 14.05.1970, Blaðsíða 27
— Þessi mynd tók
af mér völdin.
Hún sagði: Ég
vil fá svartan lit
og þennan arm
hérna, en ekki
þarna. Enda kall-
aði ég hana Ego.
— ... við ættum
að þekkja mann-
skcpnuna nógu
vel til að vita að
alltaf vcrða til
einhverjir sem
vilja éta meira
en aðrir . . .
þess vegna er
Egó búinn hníf-
um til að verja
fjöreggið . . .
„Eins og úr launsátri búast vélmennin til árásar, úr öllum áttum ota þau . . . hníf-
unum", Úr listdómi svissneska rithöfundarins René Scherrers um sýningu Jóns
Gunnars í Gallerí Súm.
— Þarna höfum við eitthvað sem er
mjúkt og þægilegt viðkomu og býður
manni faðminn . . .
ekki eftir RFay Bradbury. Þar er
lýst bjartari tækniframtíð mann-
kynsins, en þar var líka
kvikindi sem var kallað Hound-
dog. Þetta var vél, róbot, og í
hana var sett gataspjald með
öllum mögulegum upplýsingum
um hina og þessa menn. Og ef
einhver þeirra gerði eitthvað af
sér, þá tók vélin við sér, elti hann
uppi og drap hann með eitur-
broddi. Þetta var annars ósköp
þægileg vél, enda ætluð til
heimabrúks. Eigendur vélarinnar
voru brunaliðsmenn, sem höfðu
það verkefni að safna saman
bókum og brenna þær — þetta
gerist langt frammi í tíðinni,
vitaskuld. Og Hound-dog var
varðhundur.
— Læturðu íremur stjórnast
af tilfinningu, þegar þú gerir
myndir þínar, en að þú skipu-
leggir þær nákvæmlega fyrir-
fram?
— Það er ýmist. Þessa mynd
gerði ég beinlinis samkvæmt til-
finningu. En það gekk aldrei
svo langt að hún tæki völdin
af mér. En það gerði aftur á móti
þessi svarta þarna, þegar ég var
búinn með grindina og farinn að
vinna með hana. Hún sagði: ég
vil fá svartan lit. Ég vil ekki
hafa þennan arm hérna, heldur
þarna. Það var kannski sumt í
þessu sem kom ekki heima við
mitt formskyn, en það varð að
hafa það. Hún tók af mér völdin,
enda kallaði ég hana Egó.
Jón Gunnar stóð upp og
benti á umrædda mynd, sem
reis hér upp við einn veginn
og ber nokkuð óhugnanlegan
skrímslissvip, minnir einna helst
á risakolkrabba, en hér stendur
aukheldur hnífur framúr hverj-
um armi og í miðju glittir á auga
stórt eins og skálarbotn. Raunar
var myndin ekki nema svipur hjá
sjón þá, þar sem mekanisminn í
- Þetta eru einhver
lífræn form sem eru
með hnífum og oddum
og þau hljóða, - þau
eru heit og titra. ÞaS
er eitthvað að gerjast
þarna, ívélinni - tekn-
íkinni í heiminum, sem
við vitum bara ekki
hvað er!
henni var ekki í gangi, en þegar
hann er það flýtur rauð efja í
eilífum straumi yfir augað.
— Grunnhugsunin í þessu,
sagði Jón, — var sú, að þegar
tækniþróunin er komin á hærra
stig á jörðu hér, þá yrðu að vera
orðnar til vélar, sem sjá fyrir
öllum okkar þörfum. Stórar vél-
ar, sem hugsa og vinna sjálfar
án stjórnar og afskiptasemi
manna, og framleiddu t.d. mat úr
einhverjum lífrænum efnum. Og
við ættum að þekkja mann-
skepnuna nógu vel til að vera
vissir um að alltaf verða ein-
hverjir einstaklingar, sem
vilja éta meira en aðrir
og væru vísir til að reyna
að eyðileggja þessar vélar. Þær
verða því að geta haft vit fyrir
mönnunum, og þessvegna er Egó
búinn hnífum til að verja fjör-
eggið, sem hann felur í sér.
Ég er að reyna að benda fólki
Framhald á bls. 41
20. tbi. VIKAN 27