Vikan


Vikan - 14.05.1970, Blaðsíða 50

Vikan - 14.05.1970, Blaðsíða 50
Tíbetbúi lærir Ijósmyndun í Noregi Framhald af bls. 23. alls konar ílát, könnur og krúa- ir úr kopar og slegiö með silfri, svo ekki sé talað um skartgrip- ina, sem eru óviðjafnanlegir. Við þurfum að útbúa myndskreytta verðlista, sem við getum svo sent út um allan heim. Svo er annað. í Nýju Delhi eru aldagömul handrit geymd í lé- legum timburkofa. Hugsið yður ef þau brynnu áður en hægt er að ljósprenta þau. Allt slíkt er eyðilagt í Tíbet nú. Musterin eru rifin, búddalíkneski úr gulli og öðrum góðmálmum, alsett dýr- mætum eðalsteinum, eru rænd og eyðilögð. Þetta eru listaverk, sem þið hérna vesturfrá þekkið ekki. Það komu reyndar ferða- menn til Tíbet, en það var bann- að að taka myndir í musterun- um, yfirleitt bannað að taka myndir. Ennþá eru í Sikkim og Bhutan tíbetönsk musteri. Það þekkir heldur ekki neinn flótta- mannalíf okkar, nema við get- um myndskreytt blaðagreinar. Yfirleitt eru ekki aðrar myndir til, sem segja nokkuð sögu okk- ar, en þær sem ferðamenn hafa laumazt til að taka. Dalai Lama er undir ströngu eftirliti, það eru ekki margir sem komast nálægt honum, frekar en í musterin. En ég er Tíbetbúi, ég get komizt inn í musterin til að taka myndir. Eg hlýt að geta lært það sem til þarf, það er svo ótrúlega mikil- vægt. Það var greinilegt að piltinum var alvara. —• Til þess að prófa hvort hann hefði skilið mig rétt, segir presturinn, — lánaði ég honum myndavélina mína og reyndi að skýra fyrir honum sjónmálið. Thubten stóð sig vel og viku síðar var hann kominn í nám hjá einum af beztu auglýsingaljós- myndurunum, Björn Winsnes. Það var fallega gert af Winsnes að taka piltinn, því að eflaust þarf hann að skýra margt fyrir Thubten, sem ekki væri nauð- synlegt við vestræna nemendur. Nú eru liðin þrjú ár. Thubten hefur ekki legið á liði sínu. Feimni, föli pilturinn er horfinn. Nú er hann eins og stormsveip- ur, alltaf á ferðinni og Björn Winsnes er síður en svo glaður yfir því að þurfa að sjá af hon- um. Það eru sannarlega með- mæli með honum að Winsnes hefur beðið hann að koma til sín aftur, ef ekki verða lífsskilyrði fyrir hann meðal flóttamanna- þjóðarinnar frá Tíbet. Thubten fer til búða Dalai Lama, sem eru í flóttamanna- þorpinu Dharmsala við norður- landamæri Indlands, með haust- inu. Tíbet og hin voldugu Hima- lajafjöll eru í næsta nágrenni. Dalai Lama og flóttamenn hans 50 VIKAN 20-tbl- þurfa mikið á mönnum eins og Thubten að halda, enda verið óþolinmóðir eftir því að endur- heimta hann. En Thubten er að taka að sér nær óleysanlegt vandamál. Vonandi tekst honum þó að taka myndir sem auglýsa vörur, sem þeir geta framleitt, og auka þannig lífsmöguleika þeirra. Thubten hlýtur að vera töfra- maður ef hann getur einhverju áorkað. Flóttamennirnir eru svo fátækir að hann fær ekki laun, og hvernig hann fær peninga fyrir filmum og öðru til ljós- myndatækni, er ennþá hulin ráðgáta. Það þýðir ekkert fyrir hann að setja upp verzlun með vörur fyrir ljósmyndatækni, það á enginn peninga til að kaupa myndavélar, ekki einu sinni til að greiða fyrir myndatökur. Hann verður að eiga vélar og annan útbúnað; hann verður að geta ferðazt til hinna mörgu flóttamannabúða í Norður-Ind- landi, í Nepal, Sikkim og Bhut- an, til þeirra staða, þar sem enn- þá finnast ómetanlegir listmun- ir. Til viðbótar peningavanda- málinu kemur líka að hann hef- ur enga aðstoðarmenn, hann verður að vera einn í öllu og reyna að selja myndir til stór- blaðanna. Að öllum líkindum verður það erfitt, vegna þess að stórblöð, eins og Match í París, Life og National Geographic hafa sína eigin ljósmyndara, en þeir leggja ekki lykkju á leið sína til þessara afskekktu staða. Það tekur 8 daga með lest að ná til aðalflóttamannabúðanna í Dharmsala... Vonandi tekst þessum duglega pilti að skrapa saman nægilegt fé og nauðsynlegan útbúnað til að hefja það uppbyggingarstarf, sem honum er svo hugleikið og hauðsynlegt er til þess að þjóð hans fái einhverja lífsmöguleika. ☆ Kynslóðabilið brátt úr sögunni Framhald af bls. 13. séu i nýjum og fallegum föt- um, að það er ekki einu sinni gaman lengur. — Hvar skyldi fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1970 vera í pólitík? — Ég veit það varla, seg- ir GuSbjörg, — og þó aS maður hugsi um svona inál, þá kemst maSur tæplega aS nokkurri niðurstöSu, svo ég er ekki mikið að hugsa um þetta — enda býst ég ekki við að geta ráðið lífsgátuna á einni nóttu. Þarna kom hún inn á brautir sem mér hafa löng- um verið kærar sjálfuin, svo ég skelli á liana næstu spurn- ingu: —- Trúir þú á GuS og lífiS eftir dauðann? — Auðvitað trúi ég á Guð — yfirleitt, en ekki á líf eftir dauðann. Þegar maður er dauður þá er það bara búið. Ég er líka ákaflega vantrúuð á sögur sem fólk er að segja mér af andafundum og svo- leiðis. Þó man ég eftir þvi að þegar ég var 10-11 ára göm- ul, að ég sá eitthvað sem ég gat ekki skýrt. Þá dvaldi ég i sumarbústað upp við Vatns- enda með vinafólki og fór einhvern tíma með krökkum að tína radísur eða eitthvað svoleiðis rétt fyrir ofan bú- staðinn. Þá sá ég bæ þar fyr- ir ofan, i hlíðinni, og fólk fyrir utan við heyskap. Mér fannst þetta ekkert óeðlilegt og talaði ekki einu sinni um það eftir á. Svo var það fyrir einu eða tveimur árum að ég minntist á þetta við ömmu og þá kom það heim að einu sinni var bær þarna á þess- um slóðum og meira að segja ábúinn fólki sem við erum komin af. En þó ég hafi séð þetta — já, ég er fullviss um að þetta var þarna — legg ég engan trúnað á svona lagað. Þetta er bara nokkuð sem ég sá og get ekki skýrt ó. vald. m HEIMILIÐ „’Veröld inttan veggja ” SÝIMING 22. MAÍ-7. JÚNÍ 1970 SÝNINGARHÖLLINNI LAUGARDAL I(T KAUPSTEFNAN C/ REYKJAVÍK Fékk sjónina aftur... Framhald af bls. 19. ógæfu mína. Þá fór ég að íhuga þessi mál, og það hvarflaði aldr- ei að mér að ásaka Guð eða menn. Þótt einkennilegt megi virðast, þá er ég oft þakklát fyr- ir þetta tímabil, en það var svo margt nýtt, sem ég fékk innsýn í. Þegar ég fékk sjónina aftur, var ég hrædd um að ég fengi ekki að hafa Söru, hundinn minn. Það hefði orðið mér óbærilegt, því að hún var svo fasttengd lífi mínu. Hún var allt- af til staðar, þegar ég rétti út hendina eftir henni. f fyrstu vildi ég ekki fá blindrahund. En sem betur fór, var konan, sem stjórnaði skrif- stofunni fyrir blinda, mjög ákveðin. Hún fékk mig til að skipta um skoðun. Hún stakk upp á því að ég færi í æfinga- búðir fyrir blindrahunda, og lærði að notfæra mér leiðsögn þessara dýra. Yfirmaðurinn þar var mér mjög hjálplegur, rödd hans var mjög traustvekjandi. En svo liðu níu mánuðir, þang- að til ég gat fengið pláss. Eg var mjög hrifin af verunni þarna, og ég gleymi aldrei því augnabliki, þegar ég hitti Söru í fyrsta sinn, fann kalda, raka snoppuna á henni og mjúkan feldinn. Ég lærði að treysta henni, hlýða henni, þegar við fórum yf- ir götu.... Sara var líka fljót að kynnast þeim verzlunum, sem ég vildi fara í. Sara var alltaf örugg. Þegar ég vaknaði þennan minnisstæða morgun, þegar sjónin kom aftur, vaknaði með mikinn höfuðverk, sem ég reyndar var búin að vera með í marga daga, en sinnti því ekki neitt. Mömmu fannst ég ætti að liggja svolítið lengur, svo ég lagðist út af og sofnaði strax. Klukkan hálf tólf kom mamma upp og spurði hvað ég vildi borða. — Ávexti, tautaði ég, en fann strax að eitthvað var öðru- vísi en vant var. Gat þetta ver- ið dagsbirta? f þessu ljósi var einhver skuggi, sem smám sam- an tók á sig mynd. Sara stóð við rúmið mitt og sleikti mig í fram- an. Ég faðmaði hana að mér, og þá tók ég eftir því að skugginn var klæðaskápurinn minn og að ég sá hann. £g hlýt að hafa rek- ið upp óp, því að pabbi kom hlaupandi upp. Eg var næstum ær af æsingi. — Eg sé, ég sé! hrópaði ég í sífellu. Pabbi beið ekki eftir að athuga þetta frek- ar, heldur hljóp hann út í garð, til að ná í mömmu. Meðan hún hljóp upp til mín, hringdi pabbi, ær af gleði, til vina og frænd- fólks, til að segja því frá undr- inu. Það lá í augum uppi að ég fengi ekki ró heima, svo að ég var strax send á sjúkrahús í Manchester. Þar rannsökuðu sér- fræðingar augu mín. Þeir sögðu að tíminn yrði að leiða í ljós hvort sjónin yrði betri, og hvort ég fengi að halda henni. Þeir virðast vera vissir um að ég fái sjónina alveg aftur, en það geti tekið nokkra mánuði. Það er sagt að enginn viti hvað átt hefur fyrr en misst hef- ur. Þar get ég verið sammála. Sg hafði alltaf álitið það sjálfsagð- an hlut að ég hefði sjón, eins og annað fólk. Nú, þegar sjónin verður betri með hverjum degi, er ég alltaf að finna einhver ný verðmæti. . . . Nú finnst mér það dásam- legt að sjá frostið glitra í gras- inu, — greinar trjánna bærast fyrir vindi. Líf mitt, síðan ég losnaði úr myrkrinu, hefur verið dásamlegt. ... "fr

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.