Vikan


Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 55

Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 55
Viðtal Vikunnar legur sómi sýndur. Hvernig er ástandið i [jeim efnum? „Ástandið er i einu orði sagt hörmulegt. Ómetanlegar upptökur á segulböndum liggja undir stór- skemmdum. Sumar eru jafnvel \xgar skemmdar. Sumar upptökurnar eru allt að þrjátiu ára gamlar. þetta er allt á upprunalegum þöndum og líftími þeirra banda sem tekið er upp á er i rnörgum tilfellum nijög stuttur. Það sem ég hef farið í gegnum er að litlu leyti skemmt en þaðliggur undirstórskemmdum." Það er mikið verk að afrita allt efnið. í verkahring hverra skyldi það vera? „Enginn vill gangast við því. Fyrir tveimur áruni var — loksins — sett á fót nefnd sem átti að kanna þetta mál. I henni voru tveir menn frá Árnastofnun, einn frá Þjóðminjasafninu og einn frá tæknideild Ríkisútvarpsins. Á þessum slöðum eru böndin varðveitt." Meðalgræjur fyrir popphljómsveit „Nefndin skilaði nijög greinargóðri skýrslu og hún var send til fjárveitingar- nefndar Alþingis. í henni var farið fram á að fá að kaupa tækjaútbúnað sem nauðsynlegur væri til að geta komið málunum í viðunandi horf. Skýrslunni var visað frá með þeirri yfirskrift að leysa mætti málið i hljóðritunarstúdiói, sem bendir til þess að fjárveitingarmenn hafi alls ekki lesið skýrsluna. Það sárgrætilega er að tækin sem til þarf kosta ekki meira en meðalgræjur fyrir popphljómsveit. Tækin ein og sér duga auðvitað engan veginn. Það þarf lika að skapa aðstöðu til að vinna úr þessum heimildum. Það sem vantar er stofnun. eða deild í stofnun. sem vinnur að þjóðháttalegri rannsókn á islenskri tónlist, í samstarfi við aðrar þjóðháttastofnanir. Skilningur fólks á því að hljóðbönd séu skjöl — dokúment — er ákaflega lítill. Þetta eru dýrmætar frumheimildir og ef einu sinni strokast út af bandi verður sá skaði ekki bættur, nokkurn tima. Þess vegna verður að geyma frurn- gögnin vel varin og vinna eftir afritum. Og það verður að varðveita allt — það er ekki i verkahring eins eða neins að velja eða hafna — þetta á að geyma — þessu má henda. Það sem mönnum yfir sést nú getur verið ómetanleg heimild seinna, um málfar og ýmislegt annað." Liggur undir skemmdum „Eins og málum er háttað nú má i stórum dráttum segja að þau gögn sem geymd eru á Handritastofnuninni séu vel geymd, að þvi er geymsluna sjálfa varðar. Þar er allt sent Hallfreður Örn hefur tekið upp og nokkuð af öðrum upptökum. Frágangur á böndunum er hins vegar fyrir neðan allar hellur. Þessi bönd hef ég fengið aðafrita. Það sem geymt er á Þjóðminja safninu. en þar er til dæntis allt safn Þórðar Tómassonar. liggur undir skemmdum. Því hefur verið hent inn i eld- traustan peningaskáp og þar er það ranglega geymt á allan hátt. við allt of mikinn hita. böndin liggja, þau eru of laust spóluð og svo framvegis. Af þessum upptökum hef ég mestar áhyggjur en ég er hræddur um að hluti þeirra sé þegar skemmdur. Við þessi bönd hef ég ekkert átt. Það veður ekki bara hver sem er í þetta efni. Þetta eru frumheimildir og ég arnir eru ekki upp- lestrarljóð - þeir eru söngtextar" hef engan veginn þá aðstöðu að ég geti átt eitthvað við þær. 1 þriðja lagi eru upptökurnar i Ríkis útvarpinu. Meira en fjögur ár eru siðan ég bað fyrst um að fá afrit af þessum upptökum en enn hefur þaðekki gengið. í fyrstu var mér fálega tekið, seinna fékk ég betri undirtektir en engar efndir. Ég hef skrifað niður og notað allt það efni sem ég hef komist yfir i rannsóknir minar, en hér stranda ég þar sem ég hef ekki fengið aðgang að stórum hluta þess efnissem tiler. Ég sætti mig ekki við þær röksemdir að þetta sé bara aðstöðuleysi." Skilningur fólks að vakna — vonandi ekki of seint „Ég er nú þeirrar skoðunar að hljóðritunarmál Rikisútvarpsins séu ekki rétt upp byggð I grundvallar- atriðum. Síðan 1968 hefur hljóðskjalavarsla i Rikisútvarpinu veriði nokkuðgóðu lagi. Stór hluti af markverðu útvörpuðu efni siðan þá er varðveitt á geymsluböndum, fyrir gott framtak Knúts R. Magnús- sonar. En eldra efni. bönd og plötur. liggur á tveimur stöðum úti i bæ og tvennt ógnar því helst. Annars vegar það. að dagskrárgerðarntenn og fleiri geta gengið í frumritin og notað eins og þeir vilja, en óhöpp geta gerst meðan svo er. Hins vegar er þaðgeymsluaðstaðan. Hljóðritanasafn Ríkisútvarpsins er i Edduhúsinu við Lindargötu. í sama húsi er prentsmiðja og þar leggur um húsið alls konar eim, til dæmis af While Spirit og öðrum leysiefnum. Það segir mér enginn að þessi efni geti ekki haft áhrif á böndin. sérstaklega gömlu „acetat"-böndin, sent ekki hafa verið afrituð á varanleg geymslubönd. Meiri hlutinn af öllu því sem þar fyrirfinnst er í herbergjum með gluggum á móti suðri. við breytilegt hitastig sem er mjög slæmt fyrir segulbönd. Listaverk á opnum svæðum eriendis hafa skemmst meira á siðastliðnum 40 árum en 400 árin þar á undan vegna ýmissa efna sem fylgja andrúmslofti nútímans. Skilningur fólks er að vakna á þessum málum en það má ekki verða ol' seint, þegar allt er eyðilagl. Á fyrstu 20 árum útvarpsins var allt efni tekið upp á stálþráð. Tækin, sem notuð voru til þess, eru gjörsamlega glötuð og eins og stendur eru þetta þvi algjörlega glataðar heimildir. Ég hef þó góða von um að ég geti komist í samband við aðila sem gætu leyst þetta vandamál." „Sorglega lítið sem ég get gert'' Hvaðer svo til ráða? „Það þarf að koma upp aðstöðu fyrir þessa hluti hér á landi. Það er hneisa að lslendingar skuli ekki sinna þessum menningarverðmætum. Erlendis eru til hljóðskjalasöfn og þau hafa með sér heimssamband. Ég er í nánu sambandi við það elsta þeirra. Phonograph arkiv i Vín. Þeir vilja allt gera til þess að aðstoða okkur við það að koma þessum málum hérá landi í lag. Ég ætlaði á ráðstefnu heims- sambandsins síðasta sumar og leitaði eftir styrk til fararinnar hjá.ýmsum aðilum. en fékk engar undirtektir. Það var skaði að ég komst ekki þvi likur eru á að hægt hefði verið að koma ýmsum málum I lag i þeirri för. Ég byrjaði að huga að þessum rannsóknum minum 1972-73, en það er sorglega litið sem mér hefur íekist að gera á þessum árum. Það litla sem ég hef gert er bara spónn i askinn. Eins og ástandið er i dag er ekkert hægt að gera vegna aðstöðuleysis fyrst og fremst og vegna þess að það er ekki til sú stofnun hér á landi sem beinlinis vinnur að þjóðfræðilegum efnum og öðru sliku. Það eru hér nokkrir þjóðháttafræðingar sem hafa allt of mikið að gera i því sem þeir eru og hafa hvorki aðstöðu né fjármagn til að fullnægja þvi sem þeir þurfa sjálfir að gera, svo það er ekki von að þeir geti aðstoðað mann mikið i því sem maður er að gera. Það er lenska hér á landi að sé eitthvað nýtt sem þarf að konta á þá fæst hvorki fjárveiting né leyfi. Það er forðast i lengstu lög að hafast nokkuð að." Sömu pótentátarnir „Lýsing Bjarna Þorsteinssonar á þvi hvernig hann harðist við skilningsleysi og annað slíkt minnir mig oft á þá baráttu sem ntaður stendur í núna. Og þaðeru alveg sömu pótentátarnir i ráða stöðum nú eins og þá. Min skoðun á ráð herrum er sú að þeir séu nú þarna beinlinis til að bremsa allt af en ekki til að koma hlutum sern eru nauðsynlegir i framkvæmd. Þess vegna myndi ég frekar vilja kalla þá ráðhemla. Allir hafa ógurlegan skilning á þcssu. Öllum finnsl þetta bráðnauðsynlegt en það er sama hver það er. enginn gerir neitt til að koma neinu í framkvæmd. Ég hef unnið allt mitt starf I sjálfboða vinnu og notað hluta af þvi sem próf verkefni. Niðurstöður niínar á þeirri þróun sern orðið hefur á þessum gömlu lögum vöktu mikla athygli í tónlistar rannsóknardeildinni í Vin. En það er ekki endalaust hægt að vinna þetta svona. Meðan ég var i námi nýlti ég öll sumur og öll fri i rannsóknirnar en síðan ég kom heim hcf ég varla getað sinnt þessu neitt. Það fer allt i brauðstritið og skuldir.” Hvaða niðurstöður eru þaðsem vöktu þessa athygli? „Prófessorununt þótti merkilegasl að sjá þá þróun sem ég sýndi fram á i samanburðartöflu að hefði átt sér stað eftir að lögin koniu til Islands i lok 16. aldar. Ég vil meina að sönghefð okkar — sem er forsómuð hér heima — sé ein elsta arfleifð sent til er af sönghætti i Evrópu. ' Hún stendur á merg frá þvi fyrir 1200 og varðveitist frant á þessa öld. Ég skrifaði vísindaritgerð 1974-75 sem var gefin úl i sambandi við ráðstefnu unt svokallaða „bordún"-tónlist, sent einnig hefur verið til á islandi. Sú tegund bordún-tónlistar sem Islendingar þekkja best til nú er sekkjapiputónlistin i Skot landi en slík tónlist á sér einnig sterkar ræturá Balkanskaga." Leynilögregluvinnubrögð „Bordún-tónlist hefur sannanlega einnig verið til á Íslandi. 1 danskvæði sem skráð er 1699 er til dæmis hending sem endar svo: „Bordúna ei bragna 16. tbl. Vikan 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.