Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 27
Björk ásamt bílstjóranum Phil.
Ensku sviðsaðstoðarmennirn-
ir í Börberís voru kolruglaðir og
sungu og töluðu eins og þeim
hefði verið borgað fyrir það. En
þeir stóðu sig nú samt vel í því
að aftra því að mannfjöldinn
flæddi inn á sviðið og yfir Sykur-
molana.
Daginn eftir sáum við í Mel-
ódímeiker að Ammmæli hafði
verið kosið smáskífulag ársins
og Björk kosin „chapess of the
year“ af sérffæðingum blaðsins.
Sama dag var mér sagt að Syk-
urmolarnir væru með sama lög-
ffæðing og Mikk Djakker; hver
sem það nú er.
Og Derek hringdi og vildi fá
að tala við litlu poppstjörnurnar
sínar.
17. desember 1987
Molarnir vöknuðu klukkan
7:30 og sátu rúmlega klukku-
tíma i bíl á leið í viðtal við ein-
hverja sjónvarpsstöð. í ljós kom
að viðtalið átti bara að vera við
Einar og Björk.
Þór: Erum við komin hingað
til að drekka kaffi?
Svo hljóp Þór í áttina að lyft-
unni og einhver spurði hann
hvað hann ætlaði að gera. Þór
sagðist ætla að fara að kaupa
sígarettur og hvarf. Bragi gekk í
gegnum vitlausar dyr og kom af
stað eldvarnarkerfi sjónvarps-
hússins. Síðan var farið á skrif-
stofu Vorner broðers í London.
Ef til er helvíti á þessari jörð, þá
er miðja helvítis skrifstofa Vor-
ner broðers (eða Wea eins og
hún er kölluð). Þeir hefðu sleikt
tærnar á meðlimum hljómsveit-
arinnar ef þess hefði verið
krafist. Samningaviðræðurnar
við Wea voru komnar svo langt
að í rauninni var fátt eftir nema
að skrifa undir.
Þarna um morguninn upphóf-
ust miklar og undarlegar um-
ræður við Wea. Þeir gengu
meira að segja svo langt að þeir
spurðu Einar undir rós hvort
hann vildi ekki bara hætta í
hljómsveitinni, sem er fyrir mér
það sama og að reka jörðina úr
sólkerfinu. Auðvitað kom þetta
ekki til greina. Sykurmolarnir
eru eitt. En það lá í loftinu að
Wea ætlaði að nota sviðsffam-
komu Einars sem tylliástæðu
fyrir því að geta stöðvað samn-
ingana.
Björk tók af skarið og sagði
við Malkolm, málpíu Wea-fyrir-
tækisins: „Þú meinar nei.“
Wea-samningurinn sprakk.
Einhverjir á æðri stöðum innan
fyrirtækisins kipptu í spotta.
Gekk málpípa Wea of langt í að
samþykkja kröfur Sykurmolanna
um listrænt ffelsi? Ef Molarnir
hefðu skrifað undir hjá Wea,
hefði Wea þá smátt og smátt
rekið alla úr hljómsveitinni
nema Björk? Standa fyrirtæki við
samninga? Eru draugar í popp-
heiminum?
Björk: Nú stríðum við Malk-
olm og gerumst heimsfræg.
Þór: Hvað ætlarðu að verða
þegar þú ert orðinn stór?
Sigtryggur: Dauður.
Um kvöldið breyttist Bragi í
draug og flaug um íbúðina í
gegnum matarlúgu. Stólar ultu
um koll, láslausar hurðir læstust
og Bragi vaknaði í sárum daginn
eftir. Hrollvekja í sjónvarpinu.
18. desember 1987
Dagurinn hófst á heimsókn til
heitra póleidormanna. Síðan var
farið á krá með þeim í hádeginu.
Spil tekin upp og allir fóru að
spila póker við einn póleidor-
manninn og samræðurnar gengu
út á þetta venjulega bransatal. 1
miðjum pókernum spurði Sig-
tryggur manninn hvaða stöðu
hann gegndi innan fyrirtækisins.
„I am the boss.“
Menn kyngdu vatni og Jó-
hamar, lífvörður hljómsveitar-
innar, notaði tækifærið og sagði
við bossann: „Where is your
horse?“
Björk og Einar fóru af kránni í
enn eitt sjónvarpsviðtal og
lentu í leiðinni í spurningaþætti
í beinni útsendingu á meðan
bossinn hellti bjór í okkur hina.
Bossinn er stálharður eldhugi
og næstum því heiðarlegur
bissnismaður. Hann viður-
kenndi að hann vildi selja plötur
og græða peninga. Hann sagði
að sumar hljómsveitir vildu ekki
selja plötur og að Sykurmolamir
gætu ekki horft framhjá þeirri
staðreynd að ef hann ætti að
selja plöturnar þeirra yrðu þær
að innihalda seljanlega tónlist.
Hann skildi líka að Sykurmol-
arnir vilja ekki láta neinn vinna
fyrir sig og að Sykurmolarnir
vilja ekki vinna fyrir neinn, eða
réttara sagt: Að Sykurmolarnir
vilja vinna með fólki. Hann skóf
heldur ekki utan af því, að ef
nauðsyn krefúr, skipta stórfyr-
irtækin sér af öllu í sambandi
við tónlistina, jafhvel eyðunum
á milli laganna. Því auðvitað er
þögnin söluvara eins og hvað
annað.
Allt þetta vissu Molarnir fyrir
en það var mikill léttir að heyra
bissnismann loksins tala beint
út.
Bossinn hélt áffam að tala og
lagði undir í pókernum. Hann
sagði að vissulega yrðu Sykur-
molarnir að leiða lýðinn en ekki
öfúgt. Þeir yrðu sem sagt að
vera á undan öllum öðrum með
öðruvísi tónlist. Og tónlistin
verður að breytast því tímarnir
breytast. Og allt er þetta í smá-
atriðum í biblíunni; hvar annars-
staðar?
Það er grátbroslegt að á ís-
landi er öðruvísi tónlist (skrítin
tónlist?) fyrirlitin af meginþorra
þjóðarinnar og kannski mest af
bissnismönnum, á meðan enskir
bissnismenn líta á slíka tónlist
sem gullnámu.
Bossinn lagði meira undir og
viðurkenndi án þess að blikna
að mikill óheiðarleiki væri í
gangi hjá stórfyrirtækjunum.
Menn standa ekki við loforð sín
af því að margir flytjast á milli
fyrirtækja eftir stuttan tíma.
Menn eru reknir miskunnar-
laust ffá þessum fyrirtækjum ef
þeir standa sig ekki. Enda eru
miklir peningar í spilinu.
House Martins poppuðu inn á
krána. Þór talaði við einn þeirra
sem talaði ffá sér allt vit á fimm
mínútum. Bossinn sagði að Ho-
use Martins væru inni í þessu
(poppheiminum) til að
skemmta sér en hann vildi ekki
viðurkenna að þeir væru trúar-
legir ofstækismenn. Þeir eru það
nú samt.
Jólalögin dundu á okkur á
kránni og reyndar kom eitt lag
með House Martins en ekki fyrr
en þeir voru farnir. Þeir voru að
vinna í kvikmyndaveri í grennd-
inni.
Síðan var skokkað aftur í pól-
eidorbygginguna og Derek
hvarf ásamt bossanum á mikil-
vægan fúnd (?). Við lentum í
kaffibið.. bið... bið...
Eftir dúk og disk vorum við
keyrðir af póleidorundirtillu til
heimsffægs ljósmyndara. Sá
hafði komið skilaboðum til Syk-
urmolanna um að hann langaði
að taka myndir af liðinu, ókeyp-
is. Umræddur ljósmyndari lyftir
annars ekki litlafingri nema fyrir
stjarnffæðilega háar peninga-
upphæðir. Hann hlaut að hafa
fengið uppljómun. Við flettum í
gegnum ljósmyndamöppur hjá
strák og sáum að hann hafði tek-
ið myndir af súperstjörnum eins
og KRff Ridsjard, Pol Makkkart-
nei, Tínu Törner og guð má vita
hvað þetta allt saman heitir.
Sumar af myndunum hafa lent á
plötualbúmum. Ljósmyndatak-
an tók óratíma en maðurinn
þótti kurteis.
Það eru útsmognir djöflar allt
í kringum Sykurmolana. Derek
passar Sykurmolana eins og þau
væru hans eigin börn. Ekki veit-
ir af. Þetta er skrítinn heimur!
VIKAN 27