Vikan


Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 5

Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 5
Nr. 8, 1939 VIKAN 5 Liðnir leikarar. FIMMTA GREIN að er ekki fyrr en tiltölulega seint, að leikkonunnar getur að nokkru ráði hér á leiksviðinu. Raunar hafði Jón Guðmundsson ritstjóri safnað leikunnandi körlum og konum til sýningar sinnar á ,,Pakkinu“ um miðja síðustu öld og upp frá því leika konur með öðru hvoru, þang- að til leikfélagssamtökin hófust, en þá komst eðlilegri hlutverkaskipan á. í leiksýningum skólapilta léku karlmenn öll kvenhlutverkin, og sá siður hélzt í skól- anum allt til 1922, er skólaleikirnir voru teknir upp aftur, eftir að hafa legið niðri um nokkurra ára skeið, enda var það ekki fyrr en þá, að stúlkur væru teknar að stunda nám í Menntaskólanum, svo að nokkru næmi. En sá siður, sem komst á út af ,,kvenmannsleysinu“ í Hólavalla-, Bessastaða- og Reykjavíkur skóla gamla, varð furðu langlífur og það eimir enn eft- ir af honum, að því er tekur til hlutverka- skipunar í sjónleik eins og Skugga-Sveini. Þar hefir Grasa-Gudda ætíð verið leikin af karlmanni frá fyrstu tíð og til síðustu sýn- ingar leiksins. En til uppbótar fyrir það hefir Gvendur smah þá verið leikinn af kvenmanni á seinni árum. Og má þá segja, að hlutverkunum hafi verið snúið rækilega við. Fyrst eftir að dömur bæjarins fóru að taka þátt í sjónleikjahaldinu, mátti telja það sök sér, þó að þær veigruðu sér við, að leika grófustu „kerlinga-hlutverkin“, eða sérlega orðhvatar Pernillur í Holbergsleikj- um. Áhorfendum þeirra tíma fannst það síður en svo viðeigandi, að heimasæturnar tækju upp í sig orðbragð Guddu kerling- ar, þegar hún lýsir lífinu ,,í Koti, hjá hon- um Ingimundi sínum sáluga“. Smámsam- an óx skilningur áhorfenda svo á leiklist- inni, að það var ekki tahð hneikslanlegt, að ungar stúlkur léki hjákátlegar kerhngar og orðhvatar þjónustustúlkur — allar nema Grasa-Guddu. Það hefir verið sagt, að húsnæðisleysið hefði mjög staðið sjónleikjahaldinu fyrir þrifum fyrst framan af, en við það má bæta ,,kvenmannsleysinu“. Það var tiltölu- lega sjaldgæft, að sama stúlkan gæfi kost á sér til að leika oftar en einu sinni. Undan- tekning var Sigríður Einarsdóttir í Brekkubæ, sem lék hjá Jóni Guðmunds- syni 1854, Ástu í Útilegumönnum Matthí- 'asar og Jóhönnu í Æfintýri á gönguför 1862. Sigríður Einarsdóttir verður því tal- in fyrsta leikkona þessa bæjar og var hún mesta gáfu- og atgerfiskona, ekki slæleg- ur fulltrúi kvenfólksins á þessu sviði. Stefanía Guðmundsdóttir sem Magda í Heimilinu. En þó það komi fram góðar gáfur hjá ýmsum ungum stúlkum, sem „léku með“ annað kastið, og má þá einkanlega nefna Kristínu Sveinbjarnardóttur, sem lék Ingu í Milli bardaganna eftir Björnson og Önnu í Nýjársnótt- inni svo og Guðrúnu Vigfúsdótt- ur, sem lék í Gleðileikjafélaginu í Glasgow, þá er það ekki fyrr en á síðasta tug aldarinnar, að fram koma á leiksviðinu leikkonur, sem um skemmri eða lengri tíma taka virkan þátt í sjónleikjahaldi bæj- arins. Aðeins þrjár þeirra verða gerðar að umtalsefni hér, en allar þrjár, ásamt hinni fjórðu, sem enn lifir og starfar af fullu fjöri á leiksviði voru, settu sinn svip á fyrstu starfsár Leikfél. Reykja- víkur. Þessar þrjár leikkonur voru: Þóra Sigurðardóttir, Þuríð- ur Sigurðardóttir og Stefanía Guðmundsdóttir. Það er hægur vandi fyrir síðari tíma menn að gera upp á milli liðinna leik- ara að enduðu æfiskeiði þeirra, þegar svo ber undir, að einhverjum einum þeirra auðnaðist að starfa lengi og leggja mikið til málanna, og er það þó ekki einhlítt, því allt veltur á því, að leikarinn eða leikkon- an hafi vaxið með hverju hlutverki. Erfið- ara er að gera upp á milli leikaranna og segja til um hæfileika þeirra í byrjun starfsins, þegar þeir leggja út á hina við- Stefanía Guðmundsdóttir sem Ásta í Skugga Sveini. sjárverðu braut listarinnar. Það liggur nú einmitt fyrir, hvað áhrærir leikkonurnar þrjár, að starfsskeið og vaxtarmöguleikar þeirra urðu með mjög mismunandi hætti, en í byrjun var ekki annað sýnt, en að þær allar þrjár hefðu góða hæfileika, hver á sínu sviði. Þóra Sigurðardóttir, fyrri kona Árna Eiríkssonar, kom þeirra fyrst fram á leiksviði, tveimur vetrum á undan Stefaníu Guðmundsdóttur, en hún varð þeirra skammlífust og hlutverkaskrá hennar tók ekki til umsvifamikilla viðfangsefna. Hún lék Siggu í Nýjársnóttinni 1890 og Jó- hönnu í Æfintýri á gönguför veturinn eftir, og síðar Láru í sama leik, og virt- ist það hlutverk falla leikgáfu hennar betur. Eftir aldamót var leikferli hennar lokið og hafði hún þá aðeins leikið í einu hlutverki, Ingu í Milli bardaganna, sem reyndi verulega á annað en meðfæddan yndisþokka og þægilega og eðlilega leik- sviðsframkomu. í þessu hlutverki hafði henni mistekizt að leiða fram norræna skapgerð í anda sögunnar, en leikurinn fer fram á 12. öld, og hafði hún þó vandað sig að dómi Bjama Jónssonar frá Vogi. Eftir þetta lék frú Þóra aðeins eitt hlut- verk enn, en því er dæmið tekið af Ingu í Milli bardaganna til að sýna, hvers menn væntu sér af henni sem leikkonu, er hún varð fyrir valinu í þetta hlutverk, en ekki Stefanía Guðmundsdóttir, sem þá lá undir þeim dómi áhorfenda, að henni hæfðu ein- göngu hlutverk gázkafullra ungmeyja. Hitt er ekki að efa, að hefði frú Þóru auðnazt að halda áfram að leika í hlut- verkum eðlisskyldum Láru í Æfintýrinu, blíðlyndar, ungar stúlkur, nokkuð heigð- ar til þunglyndis, þá hefðu hennar beðið mörg verkefni í þágu leiklistarinnar, og engin ástæða til að ætla, að hún hefði fengið annan dóm fyrir þau, en þann, sem hún ætíð hlaut með einni einustu undan- Framh. á bls. 17. Þuríður Sigurðardóttir sem húsfreyjan í Nýársnóttinni. Með- leikari er Marta Indriðadóttir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.