Vikan - 02.12.1943, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 48, 1943
3
Söngkonan frá Halldórsstöðum
Mörg eru þau ævintýri, sem gerast í
hversdagslífinu og ekki verða lýð-
um ljós fyrr en ef til vill seint og
um síðir. Fyrir skömmu hljómaði söngur
68 ára gamallar konu frá útvarpinu í
Reykjavík — konu, sem hefir með söng
sínúm skemmt og yljað í nærri hálfa öld
í sveit á Islandi og er þó fædd og uppalin
í höfuðborg Skotlands, Edinborg.
Páll Þórarinsson heitir bóndi, sem býr á
Halldórsstöðum í Laxárdal í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Hann fór ungur utan, árið
1882, til Skotlands. Þar varð lítil stúlka, 7
ára gömul, til þess að hjálpa honum við
ið haldin heimþrá — til Islands. Og aldrei
hefir hún séð eftir að hafa sezt að hér
á landi. Hún skildi ekki mál fólksins fyrst
í stað og það ekki hennar mál, en fyrir at-
beina sönggáfunnar eignaðist hún fljótt
vini, sem elskuðu hana og virtu. Sjálf er
hún mjög hrifin af söng og hann er henn-
ar mesta yndi. Maðurinn hennar er og
,,músikalskur“ og spilar á hljóðfæri og svo
mun vera um fleiri á Halldórsstöðum.
Páll bóndi Þórarinsson á Halidórsstöðum í Lax-
árdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann kvæntist
Lissie árið 1894 úti í Skotlandi og fóru þau að
búa á Halldórsstöðum þá um sumarið og hafa
búið þar síðan. 1 baksýn sjást hólmarnir í Laxá
undan Halldórsstöðum. (Myndin var tekin síðast-
liðið sumar).
undirstöðunám í enskri tungu — en ekki
urðu löng kynni þeirra þá. Páll dvaldist við
fjármennsku hjá skozkum bændum um
veturinn. Hann fór síðan fleiri ferðir til
Skotlands og þau Lizzie munu hafa skipzt
á bréfum, en árið 1894 komu þau saman
upp til íslands og voru þá hjón og hófu
búskap á Halldórsstöðum um sumarið og
þar búa þau enn.
Frú Lizzie festi rætur á íslandi í heiða-
dalnum norðlenzka og söng gleði og unað
inní hjörtu sveitunga sinna og annarra, er
gafst kostur á að hlýða á söng hennar.
Fyrir meira en 20 árum söng hún í fyrsta
skipti opinberlega á Akureyri, og mun það
hafa verið Einar Olgeirsson, núverandi al-
þingism., er fékk hana til þess. Áskell söng-
stjóri Snorrason spilaði undir. Síðan hefir
hún oftar.sungið þar og á Húsavík.
Frú Lizzie Þórarinsson er algerlega
sjálfmenntuð söngkona, en hún hefir mik-
ið sungið, því að oftast mun hún hafa
gert það, þegar gestir komu á heimilið.
Einu sinni voru þeir þar á ferð Geir vígslu-
biskup og Sigurður Skagfield söngvari.
Lizzie söng fyrir þá. Lét séra Geir þau orð
falla á eftir, að Lizzie væri söngkona af
guðs náð.
Frú Lizzie hefir fjórum sinnum farið til
Skotlands, síðan hún fluttist hingað, sein-
ast fyrir þrettán árum. Þar hefir hún ver-
Frú Lizzie Þórarinsson í skautbúningi. Hún tal-
ar íslenzku með ágætum, en hefir þó ekki gleymt
móðurmáli sínu og virðist jafnvíg á bæði málin.
Kunnugur maður hefir tjáð Vikunni, að
Páll bóndi Þórarinsson sé einn af hinum
eldri skóla íslenzkrar bændastéttar, fast-
heldinn við fornar venjur, gerhugull um
allt, er horfi til breytinga, en traustur og
haldinorður svq sem bezt má verða. En
frú Lizzie, sem hafði hlotið uppeldi í er-
lendri stórborg varð ekki skotaskuld úr
úr því, að semja sig að háttum fornrar
íslenzkrar bændamenningar. Þótt á heimili
þeirra hjóna hafi gerzt tíðförult af erlend-
um gestum og sumir hafi dvalizt þar lang-
dvölum, hefir það ekki raskað hinum fasta,
íslenzka svip heimilisins. Þessi kona hefir
því, auk þess að geta sér ástsældir með
list sinni, gerst ein hin virðulegasta íslenzk
húsfreyja og sómi íslenzkrar húsmæðra-
stéttar. Henni hefir tekizt það, sem fá-
gætt má kalla, að sameina arftekna, er-
lenda stórborgarmenningu íslenzkum
sveitalífsháttum og varðveita það bezta úr
hvorutveggja í lífi sínu og öllu dagfari.
Vegna þeirra ótal mörgu, sem hlustuðu
á söng frúarinnar í útvarpinu og voru
hrifnir af honum, skulu hér talin lögin,
sem hún söng: „Silver threads among the
gold,“ eftir H. P. Dank (tekstinn er eftir
Frú Lizzie heima í stofu sinni á Halldórsstöðum
sumarið 1943.
E.Rexford); „Loch Lomond,“ skozkt þjóð-
lag (tekstinn eftir Robert Burns); „The
last rose of summer," eftir von Flotow
(tekstinn eftir Thomas Moore); Blátt lítið
blóm eitt er,“ eftir F. Kiicken (þýzk þjóð-
vísa, þýdd) ; „Mamma ætlar aðsofna,“eftir
Sig\ralda Kaldalóns (tekstinn eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi); „Stóð ég úti
Frú Lissie á unga aldri, eftir að' hún kom til
Islands.
í tunglsljósi,“ íslenzkt þjóðlag (tekstinn
þýddur á ensku af Isaac Johnsson); „Ben
Bolt,“ eftir J. Kneass; „Thora,“ eftir
Stephan Adam. Undirleikinn annaðist
Ragnar H. Ragnar. Hann er Vestur-Isle'nd-
ingur. Frúin hafði sungið lögin inn á plöt-
ur, nokkrum dögum áður en þau voru flutt
í útvarpinu.
Frú Lizzie er fríð kona og góðleg og
einstaklega alúðleg í viðmóti og er það
auðskilið, að hún hefir stráð sólargeislum,
þar sem hún hefir verið — og sungið. Þau
hjónin eiga tvo uppkomna syni og eru þeir
báðir heima á Halldórsstöðum.