XXXIV. 2. MAÍÁGÚST 1961 ÁRMANN SNÆVARR: Um Háskóla íslands. Erindi flutt í Rotary-klúbbi Reykjavikur 18. jan. 1961. Ég vil hef ja mál mitt á því að láta í ljós ánægju mína yfir því að eiga þess kost að ræða við yður hér í dag um málefni Háskóla íslands. Ég tel, að við há- skólans menn mættum gera meira að því að kynna öðr- um mönnum starfsemi skólans og hagi hans, því að vissulega eru málefni háskólans þjóðmál. Ætla má, að áhugi annarra manna og skilningur auk- ist á málefnum okkar stofnunar, ef við neytum færis til að skýra frá starf- semi skólans frá því, sem þar er gert, og frá hinu, sem okkur vanhagar um og við viljum breyta. I. Háskóli íslands var stofnaður með lögum frá 30. júlí 1909, sem mæltu svo fyrir, að embættismannaskólarnir þrír, Prestaskólinn, sem stofnaður var 1847, Læknaskól- Armann Snavarr rektor Háskóla íslands.