92 MENNTAMÁL og eru lögfræði og viðskiptafræði saman um eina deild, laga- og viðskiptadeild. Fastakennarar í viðskiptafræðum hafa lengstum verið tveir, en þriðja prófessorsembættið hefur nú verið stofnað að lögum, og auk þess starfa þar 2 dósentar. Standa lög til þess, að viðskiptadeild verði sér- stök deild nú á næstunni, og verða þá háskóladeildirnar sex talsins. Á árinu 1942 var lagður grundvöllur að kennslu til B.A. baccalaureum artii prófa. Samkvæmt gildandi reglu- gerð má halda uppi kennslu í 16 kennslugreinum til B.A.- prófa, og gætir þar mest ýmissa tungumála, fornra og nýrra, auk greina eins og sagnfræði, landafræði, stærð- fræði, eðlisfræði, bókasafnsfræði o. fl. 1 sambandi við B.A.-námið, sem fer fram í skjóli heimspekideildar, má nefna sérstakt próf í íslenzkum fræðum fyrir erlenda stúdenta, sem stunda nám hér við háskólann. Hafa lokið því prófi alls 7 stúdentar, þar af 4 síðustu 4 árin. Segja má raunar, a§ það séu tiltölulega fáir þeirra erlendu stúd- enta, sem hér hafa stundað nám við háskólann, sem ljúka þessu prófi, enda eru prófkröfur miklar og því á færi þeirra einna, sem hér geta dvalizt nokkur ár, að þreyta þetta próf. Fer þeim erlendu stúdentum fjölgandi, sem hér stunda nám við háskólann, og eru nú í vetur innrit- aðir 18 erlendir stúdentar. Ýmsir þessara stúdenta stunda námið með styrk frá íslenzka ríkinu. Er mjög ánægjulegt að minnast þessa þáttar í starfsemi háskólans, og vissu- lega er bæði gagn og gaman að því fyrir stúdenta og kenn- ara að hafa þessa erlendu skólaþegna á meðal vor. Enn er þess að geta, að kennsla hófst í tannlæknisfræði haustið 1945. Kenna þar einn prófessor og einn dósent og nokkrir kennarar aðrir. Kennslan fer fram á vegum lækna- deildar. Með háskólalögunum nýju frá 1957 var enn bætt við kennslu í lyfjafræði lyfsala, en jafnframt var lagður nið- ur Lyfjafræðingaskóli íslands, sem stofnaður var með