MBNNTAMÁL 95 Gamli garður var reistur að verulegu leyti fyrir framlög einstaklinga, félaga og fyrirtækja og sveitafélaga. Nýi stúdentagarðurinn var einnig reistur fyrir samskot lands- manna og vegna brýnna þarfa stúdenta, er Gamli Garð- ur var tekinn til þarfa brezka herliðsins hér á landi 1940, og héldu Bretar honum gegn andmælum háskólans allt til styrjaldarloka. Sýna þær byggingaframkvæmdir hve mik- illar velvildar háskólinn og stúdentar hans njóta meðal íslenzks almennings. Á síðustu árum hafa átt sér stað ýmis konar fram- kvæmdir í háskólabyggingunni, rannsóknarstofnanir hafa verið útbúnar í nyrðri álmu skólans, fyrir lyfjafræði og lífeðlisfræði, og í syðri álmunni hefur á s. 1. ári verið út- búið húsnæði fyrir kaffistofu stúdenta, sem tók til starfa 10. des. s. 1., og fyrir bóksölu stúdenta, sem fluttist þang- að í vetur, og enn fremur húsnæði fyrir deildarfélög stúd- enta. Þá var enn fremur tilbúin á s. 1. ári ný hæð, yfir austurálmu íþróttahússins, en þar er húsnæði fyrir kennslu í eðlis- og efnafræði. Háskólanum hefur verið kleift að leggja í þessa bygg- ingastarfsemi, vegna þess að á árinu 1933 var honum veitt happdrættisleyfi. Hefur hagnaður af starfsemi happdrætt- isins numið röskum 20 millj. kr., og hefur háskólahapp- drættið þó eitt allra happdrætta hér á landi orðið að sæta þeim kjörum að greiða 20% af hagnaði sínum sem leyfis- gjald. Prófessor Alexander Jóhannesson átti hugmyndina að happdrætti fyrir háskólann, og hefur það snjallræði hans reynzt háskólanum mikill búhnykkur. Prófessor Al- exander hefur einnig að öðru leyti verið hinn mesti nytja- maður fyrir háskólann og mikill athafna- og atkvæðamaður í öllum byggingaframkvæmdum skólans, en hann hefur verið lengur rektor skólans en nokkur maður annar. Ann- að fjármálafyrirtæki háskólans er Tjarnarbíó, sem Sátt- málasjóður rekur. Er nú ný bíóbygging að rísa við Haga- torg, sem kunnugt er, á vegum Sáttmálasjóðs, en sú bygg-