100 MENNTAMÁL Háskólabókasafnið er alltof lítið eins og geta má nærri, svo sem fjárráðum þess hefur verið farið, og væri það veglegt hlutverk fyrir ýmis félagasamtök í landi hér að bæta nokkuð úr því með fjárframlögum. Ýmsir ágætir erlendir vísindamenn hafa gist háskólann og flutt þar fyr- irlestra og jafnvel starfað þar um nokkurt skeið. Er það von mín, að slíkt geti stóraukizt á næstunni, m. a. vegna þess, að okkur hér í litlu þjóðfélagi er geysileg þörf á við- miðun um það, hvar við stöndum vísindalega, en sú við- miðun fæst naumast á annan hátt virkari en þann, að hér starfi erlendir vísindamenn. Væri æskilegt, að hvert ár starfaði hér a. m. k. einn erlendur prófessor við háskól- ann, og dreifðist slíkt á deildirnar ár frá ári. í þessu sam- bandi ber að minnast með þökk og virðingu starfa erlendra sendikennara við háskólann. Starfa hér nú sendikennarar frá Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Noregi, Spáni, Sví- þjóð og Þýzkalandi. Hafa sendikennararnir veitt frjóvum menningarstraumum til landsins og unnið hér ágætt starf. Einnig ber að geta með þakklæti gistiprófessora frá Banda- ríkjunum, sem starfað hafa við háskólann á vegum Ful- bright-stofnunarinnar. í málefnum stúdenta er það sennilega brýnast, að bætt verði úr þörf þeirra á félagslegri aðstöðu með því að reist verði félagsheimili stúdenta. I því þyrfti að vera aðstaða til skemmtana og auk þess ætti þar að vera mötuneyti stúdenta, sem að vísu er til húsa nú á Gamla Garði, en býr við örðugar starfsaðstæður. Þá er einnig orðin brýn þörf á stúdentagarði fyrir gifta stúdenta, en nú má ætla, að fullur þriðjungur stúdenta sé giftur, og margir þeirra eignast barn eða börn áður en þeir ljúka kandídatsprófi. Halda mætti lengi áfram að ræða um framtíðarverk- efni háskólans en hér skal þó staðar numið. Starfið er margt, verkefnin óþrjótandi, enda er vísindastarfsemi á Islandi í bernsku miðað við mörg önnur lönd. Rannsóknir, sem fram hafa farið, sýna, að hér á landi