MENNTAMÁL 105 DR. Z. PICHA: Eðli sálarorkunnar TILGANGUR HENNAR OG ÞÝÐING. Þýðandi: Matthías Jónasson. Höfundur greinarinnar er tékkneskur fióttamaður, dr. juris Zdenék Picha. Hann undi illa einræði í ættlandi sínu. Þegar nazistarnir þýzku hernámu Tékkóslóvakíu, lagði hann niður starf sitt og neitaði að vinna með þeim. Þegar kommúnistar komust þar til valda eftir styrj- öldina og tóku að beita valdi sínu í alvöru, kaus dr. Picha heldur að yfirgefa land sitt en að búa við stjórn þeirra. Hann fann griðastað hér á'landi og er búsettur í Reykjavík. Dr. Picha er óvenju fjölfróður maður. Auk lögfræðinnar hefur hann lagt stund á náttúruvísindi, einkum lífræna efnafræði og eðlisfræði. Síðastliðinn hálfan annan áratug hefur hann þó eingöngu fengizt við sálvísindi. Það vandamál, sem hann glímir einkum við, er uppspretta og eðli sálarorkunnar, ein meginráðgáta sálarfræðinnar að fornu og nýju. Dr. Picha hefur sett fram mjög frumlega kenningu til lausnar þessu vandamáli. Það er allstórt rit, sem kemur út á þessu ári hjá hinu fræga útgáfufyrirtæki Hans Huber í Bern. Auk þess hefur dr. Picha ritað greinar í ýmis sérfræðitímarit, þar sem hann fjallar um einstaka þætti þessa máls. Síðan Ágúst H. Bjarnason leið en einnig hann glímdi við ráð- gátu sálarorkunnar kynnast íslendingar eingöngu hagnýtri sálar- fræði. Það mætti því vera lesendum Menntamála kærkomin tilbreytni að fylgjast einu sinni með vinnubrögðum manns, sem leitast ótrauður við að leysa eitt flóknasta vandamál nútíma sálarfræði. Þýðandi biður afsökunar á því, að honum hefur ekki tekizt að snara samanþjappaðri þýzku höfundar á lipra íslenzku. Þýð. Vér lifum á tímum hraðrar þróunar, jafnvel gjörbylting- ar í náttúruvísindum, einkum á sviði kjarnorkuvísinda og lífrænnar efnafræði. Tæknin hefur hagnýtt niðurstöður þessara vísinda í sína þágu og gert uppgötvanir, sem oss óraði ekki fyrir, en eru ýmist nytsamar eða geigvænar.