MENNTAMÁL - 121 rúmfræði, rúmteikningu, jöfnum, merkjamáli, föllum (functions), töflugerð og línurita). Þessi frumatriði reiknings verða æ drýgri þáttur í fleiri og fleiri starfs- greinum. 3. Reikningur, með þeim hugsunarmáta sem hann skap- ar, ætti að vera mikill þáttur í uppeldi hvers manns nú á tímum, jafnt þótt störf hans verði hvorki á sviði tækni né vísinda. Reikningskennslan, nátengd kennslu annarra fræða, ætti að opna augu nemenda fyrir hlutdeild reikn- ingsins í vísindalegri lífsskoðun og heimsskoðun vorra tíma. Rúm á stundaskrám. 5. Reikningur, sem er ein höfuðgreina í öllum bekkj- um framhaldskóla, þarf að njóta nægs tíma á stunda- skrám. 7. Æskilegt er að nemendum, sérlega vel föllnum til reikningsiðkana, sé veitt aðstaða til aukins reikningsnáms, bæði með sérstakri námsskrá og bættri aðstöðu til heima- náms. 9. Alls staðar, þar sem reikningur er skyldunámsgrein, ætti að telja hann meðal höfuðgreina, og gæta þess að prófeinkunnir í reikningi séu jafn mikilvægur þáttur við flutning milli bekkja og á vottorði um lokapróf og reikn- ingurinn er í kennslunni. Námsskrár. 11. Reikningsnámsskrár verða að fylgjast með þróun vísindanna, tækninnar og lifnaðarháttanna, og kasta burtu úreltum hlutum. Því skyldi veitt sérstök athygli, að nokkr- ar þjóðir hafa aukið námsskrár sínar með ákvæðum um kennslu í analytskri rúmfræði, infinitesimalreikningi og statistik, og um aukna kennslu um funksionir og vektora, sem og hagnýtingu reiknings. 13. Æskilegt er að námsskeiðum sé svo hagað að kennsl-