126 MENNTAMÁL MOGENS ELLEHAMMER: Kennsla treglæsra barna. Á síðastliðnu ári kom út hjá Gyldendal f jórða útgáfa af Praktik. Haandbog for unge Lerere. Útgáfa þessi er aukin og breytt og heitir nu Praktik I og er miðuð við fyrstu 7 ár barnaskólans. Ætlunin er að bæta við Praktik II fyrir áttunda og níunda og e. t. v. tíunda bekkinn og tekniske forberedelses klasser" og síðan Praktik III fyrir gagnfræða- stigið. Bókin skiptist í eftirfarandi höfuðkafla: I. Börn, for- eldrar og kennari. II. Starf shættir og skipulag. III. Kennslu- fræði einstakra námsgreina. IV. Sérstök viðfangsefni. Og að lokum yfirlit um kennslufræðilegar bókmenntir ásamt atriðaskrá. Hver meginkafli skiptist síðan í ýmis sérsvið. Hér fer á eftir sýnishorn úr f jórða kaflanum. Br. J. Treglæs börn eru á engan hátt samstæður hópur. Þvert á móti geta þau verið mjög ólík. Sum eru áhugasöm, vel gef- in og lífleg, önnur iðin, en þyngslaleg, enn önnur hvikul og f löktandi. Þá koma enn börn, sem eru innhverf og haldin alls kyns geðrænum hömlum. Sum eru seinþroska andlega. Önnur eru haldin vanmetakennd. Þar við bætist svo enn, að greind þessara barna er mjög misjöfn, enda þótt þau hafi öll fulla greind. Málþroski þeirramisjafn, sem og samfélags- legur þroski þeirra. Þegar þessi efni eru höfð í huga, er auðsætt, hversu mislitur hópurinn er. Þegar þess er gætt, að treglæsu börnin eiga við að etja ýmiss konar geðræna örðugleika, auk námsörðugleikanna, er ljóst, að kennslan gerist á tveimur meginsviðum: (1) Á sviði andlegrar heilsuverndar. (2) Með sérhæfðri kennslu.