148 MENNTAMÁL einhverra hluta vegna athyglisverð, les ég aftur og þá langoftast upp- hátt, ef ég er ein. Til fullnustu finnst mér ég ekki njóta Ijóðs, fyrr en ég he£ lært það utanað og get kallað það fram í huganum, hvar og hvenær sem tóm gefst til." Máli mínu er lokið að sinni, og vona ég, að það veki fleiri spurningar en það veitir svörin. Yfirlit um barnafræðslu í árslok 1960. 1. Tala settra og skipaðra kennara í barnaskólum er nú 800. Þar með eru taldir kennarar við einkaskóla, vistheimili og Málleys- ingjaskólann (4 af þessum kennurum eru í orlofi). Af þessum 800 kennurum eru 64 farkennarar. Heimangönguskólar eru nú 115, með einkaskólum, 48 lieimavistarskólar (þar með talin vistheimili) og 67 farskólar. Er þá hvert skólahverfi talið einn farskóli. Þremur far- skólum var á árinu breytt í heimavistarskóla Geiradals-, Bárðdæla og Svalbarðsskólahverfi, Og önnur 3 gengu til samstarfs við önnur skólahverfi um heimavistarskóla. (Fellsstrandar-, Haukadals- og Hjaltastaðaskólahverfi). 2. Tala nemenda í þessum barnaskólum og vistheimilum var 22488 síðasta skólaár, en mun nú vera yfir 23 þúsund. 3. Fjárlög 1960 gera ráð fyrir kr. 179.146.490.00 til menntamála. Þar af er ætlað til kennslumála samkv. A-lið, kr. 166.582.572.00. Fram- lag til barnaskólahúsa og skólastjórabústaða alls kr. 16.540.134.00. Til nýrra skólahúsa, 10 alls, kr. 1.550.000.00 og til nýs skólastjórabú- staðar kr. 50 þús. 4. Ný skólahús tekin í notkun á árinu að einhverju eða öllu leyti. a) Hlíðaskólinn í Reykjavík. b) Laugalækjarskólinn í Reykjavík. c) Barna- og gagnfræðaskólahús á Húsavík. d) Mýrarhúsaskólinn á Seltjarnarnesi. e) íþróttahús í Kópavogi. 5. Auglýstar voru 26 skólastjórastöður og 122 kennarastöður við fasta skóla og 18 farkennarastöður. Ekki tókst að fá fasta kennara í allar stöðurnar. Nokkur skólahverfi urðu að ráða stundakennara 1 stað fastra kennara. Réttindalausir kennarar og skólastjórar í íöstum skólum eru nú 79 alls og 48 farkennarar.