152 MENNTAMAL ur að taka afleiðingunum af því og veita honum nauð- synlega vernd. Athugasemd þýðandans. Margt er líkt með skyldum. Sjálfsagt kannast íslenzkir kennarar við flest það, sem hér er drepið á. Varla hefur geðverndardeildin í Heilsuverndarstöðinni orðið til af ein- tómri fordild, ekki heldur starfsfræðslan né embætti hins einmana skólasálfræðings. Mikilsvert væri, ef allir yrðu sammála um það hér að auka þessa starfsemi eins mikið og fljótt og mögulegt er." Hitt getur verið vafasamara, hvert traust kennurum er í reglum eins og þeim, sem drepið er á í greininni. Sennilega fallast flestir aðilar á, þegar til kastanna kemur, að úlfurinn megi ekki ganga laus, nema þá úlfurinn sjálfur. Þótt takast mætti að smíða haldbæran f jötur af anda fisks- ins, dyn kattarins, fogls hráka o. s. frv., er enn eftir að leggja fjöturinn á, og hver vill leggja hönd sína að veði og þiggja að launum spé hinna, sem hafa báðar sínar heilar. Við sjáum hvað setur? Nýr skóli í Tammerfors. Rannveig Löve. í Tammer fors í Finnlandi eru 120.- 000 íbúar. Þar var hinn 1. október vígð- ur nýr skóli, sem Tammerforsbúar eru mjög stoltir af. Skólinn er skipulagður og byggður fyrir hjálparbekki barna- skólanna. Hann heitir Saukonpuiston koulu og er fyrsti skóli sinnar tegundar í Finnlandi. Byggingin er 12.000 rúmmetrar og kostaði ca. 115 milljónir marka. Arki-