MENNTAMÁL 153 tektarnir Ilveskoski og Uotila skipulögðu og teiknuðu bygg- inguna eftir að hafa ferðazt um Svíþjóð, Danmörk og Þýzkaland ásamt Kartila skólastjóra til þess að kynna sér slíka sérskóla. Við Saukonpuiston koulu eru nú 210 nem- endur og 18 kennarar. Tveir bekkjanna eru svonefndir vinnubekkir, hinir eru venjulegir hjálparbekkir. Við byggingu skólans var lögð áherzla á að hann væri aðlaðandi og hlýlegur, heimilislegur, um leið og hann full- nægði að öðru leyti fyllstu kröfum, sem til slíkra stofn- ana eru gerðar. Skólalóðin er látin vera eins og hún kem- ur fyrir frá náttúrunnar hendi. Byggingin er U-laga og skiptist þannig, að í annarri álmunni eru kennslustofurn- ar, en í hinni eru vinnu- og tómstundaherbergi. Þar er einnig stofa læknis og tannlæknis og bókasafn, en það er ætlað öllum, sem í skólanum eru eða hafa verið. í mið- byggingunni er svo leikfimis- og samkomusalur. í kennsluálmunni er stofunum skipt þannig, að fjórar stofur hafa sameiginlegan inngang frá leikvelli og er þá gengið hálfan stiga niður í tvær stofanna, en hálfan stiga upp í hinar tvær. Á þennan hátt skiptist skólinn í deildir. Félagsstarfsemi skólans er ætlað mikið húsrými. Undir kennarastofunum er salur, einskonar félagsheimili, þar er sjónvarp og þessum sal fylgir líka sérstakt lítið eldhús. Eftir hádegi dag hvern er þessi salur notaður sem dag- heimili, en á kvöldin fer þar fram hvers konar félagsstarf- semi og tómstundaiðja með aðstoð sérstakra leiðbeinenda. Þarna prentar nemendasambandið meira að segja sitt eig- ið blað. Hinn nýi skóli í Tammerfors hefur vakið geysimikla at- hygli vegna þess, hve aðlaðandi hann er og skemmtilegur um leið og hann þjónar fullkomlega sínum nytsama til- gangi. Þeir, sem við kennslu og skólamál fást, hafa látið í ljós áhuga sinn á starfsemi þessari og vona nú, að fræðslu- yfirvöld annarra staða sjái sér fært að bæta aðstöðu þeirra, sem að hjálparkennslu starfa, í ríkari mæli en verið