154 MENNTAMAL hefur, svo að bæði kennarar og nemendur fái náms- og vinnuskilyrði við hæfi. Þá má einnig geta þess hér, að undanfarna mánuði hef- ur verið starfrækt í Tammerfors vinnuheimili fyrir verst gefnu drengina, sem útskrifaðir eru úr hjálparskólanum. Vinnuheimilið er starfrækt af Stadsmissionen" í Tamm- erfors með styrk frá bæjarfélaginu. 1 vinnuheimilinu er gerð athyglisverð tilraun til þess að þjálfa drengina til vinnu við iðnaðinn. í Tammerfors er þannig vel að miður gefnum nemend- um búið. Þýtt og endursagt. Special pedagogik, nr. 4, 1960, bls. 193. Rannveig Löve. Nokkur orð um náttúrufræðikennslu. í riti sænska menntaskólakennara- sambandsins, Pedagogisk Debatt, er í desemberhefti síðasta árs grein eftir Uno Holmgren, þar sem hann gagn- rýnir svonefndan antropomorfisma" innan líffræði, og þá einkum innan þeirrar líffræði, sem kennd er í skól- um. Með antropomorfisma, sem . kalla mætti á íslenzku mannöpun, er átt við það, er dýrunum eru tileinkaðar mann- legar tilfinningar og mannleg hegðun viðbrögð dýr- anna metin eftir mannlegum siðalögmálum. Örnólfur Thorlacius.