156 MENNTAMÁL auðn, og óþefurinn af hræjum dýranna var óþolandi.1)" .." Hér á landi er lítill sem enginn gaumur gefinn þeirri grein líffræðinnar, sem ökologi (ecology) kallast, það er fræðin um samband lífveru og umhverfis um dýra- og plöntusamfélög, samstarf og samkeppni lífveranna og um nauðsynleg lífsskilyrði hverrar lífveru. Þetta sinnuleysi stafar meðal annars af því, að hér er með kennsluskrá og kennslubókum reistur múr milli dýrafræði og grasafræði. Hvergi í barna- eða unglingaskólum eru kennd sameigin- leg undirstöðuatriði líffræðinnar. Svo rammt kveður að þessu, að orðið líffræði hefur tæpast haldið eðlilegri merkingu í íslenzku. Margir virð- ast halda, að líffræði sé nokkurn veginn það, sem stend- ur í samnefndri kennslubók eftir dr. Sigurð H. Pétursson, sem kennd er í menntaskólum og öðrum æðri skólum, en líta ekki á líffræðina sem samnefnara dýrafræði og grasa- fræði.2) Á þessu verður tæpast nein breyting, fyrr en samd- ar hafa verið og teknar í notkun nýjar kennslubækur, þar sem undirstöðuatriðum líffræðinnar sameiginlegum dýrafræði og grasafræði er meiri gaumur gefinn. Örnólfur Thorlacius. 1) Uno Holmgren: Nágra kritiska synpunkter pá biologiunder- visningen. Pedagogisk Dcbatt, 4. 1960, bls. 118119. 2) Þessu til stuðnings má nefna áætlaða námsskrá um náttúru- fræðigreinar við B.A.-deild Háskóla Islands. Þar var náttúrufræð- inni skipt samkvæmt stundaskrá gagnfræða- og menntaskóla i dýrafræði, grasafræði og líffrði, ásamt lífeðlisfræði manna!