164 MENNTAMÁL prýðilega uppalendur og kennara, hefur ekki tekizt að sneiða hjá hættunni a£ hálfmenntuninni né girða fyrir það að barnakennar- inn fann til þess, að hann var aðskilinn andlega og samfélagslega frá stétt menntamanna." Suðurþýzku iöndin hafa einnig horfið hægum skrefum frá kennaraskólunum. / öðru lagi felur þetta í sér, að háskólarnir einir sér og í núverandi mynd geta ekki leyst þetta verkcfni. Háskólarnir ráða ekki yfir nægilegum liðsafla til þess að geta tekið við öllum þorra barnakennara. Auk þess brestur há- skólana sannfæringu um uppeldislegt hlutverk sitt, og þeir geta ekki kennt hinar almennu greinar af uppeldislegum móði. Kennarahá- skólarnir leggja sig fram um að ná tengslum við háskólana og uppeld- isleg samvizka háskólanna hefur verið vakin. Háskólarnir þrír í Hessen og tækniháskólinn í Darmstadt hafa lýst yfir áhuga sínum á því að veita öllum stúdentum landsins vísindalega menntun. Sú fyrirætlun komst þó ekki fram hjá að gera ráð fyrir pedagogiskum institulm er skyldu taka að sér hinn kennslufræðilega og listræna hluta kennaramenntunarinnar. Það má styrkja tengsl þessara stofnana með persónusambandi og kennaraskiptum, og jafnvel kæmi til mála að sameina kennaralið kennaraháskólanna kennaraliði háskólanna. Hins vegar virðist ekki á næstunni unnt né æskilegt að koma á sams konar menntun fyrir kennara við öll afbrigði skóla. (Alle Schulformen). Hinir málefnalegu örðugleikar eru um of gegnsýrð- ir af stéttarlegum fordómum. Bretland. Það er á margan hátt sérstaklega lærdómsríkt að at- huga þróunina í Bretlandi, einkum af þeim sökum, að hinn vandaði undirbúningur brezku skólalöggjafarinnar 1944 hafði eigi lítil áhrif á störf íslenzku milliþinganefndar- innar, sem undirbjó íslenzku löggjöfina 1946 og 1947. Það kemur enn til, að brezkir kennaraskólar bjuggu, og búa e. t. v. að einhverju leyti enn, við ájíka þröngan kost og íslenzkir. Af heimildum þar um mun tíðast vitnað í McNair-nefndina og álitsgerð hennar frá 1944. McNair-nefn din. Þegar brezka skólalöggjöfin frá 1944 var undirbúin, sá R. A. Buttler, forseti Board of education, kennaraskort-