166 MENNTAMÁL skólarnir tæki á sig ábyrgð á námi allra kennara, né hefðu þeir heldur tök á því. Nefndarhlutanum stóð stuggur af því, að nýir kennaraskólar lentu allir í háskólaborgum, háskólarnir myndu flytja kennaraefnum of einhliða fræði- leg sjónarmið, en kennaraefnin myndu setja óeðlilega mikinn svip á háskólana. Þess vegna mælti nefndarhlutinn með því, að unnið yrði að frekari eflingu á samvinnunefndunum (Joint boards), en í þeim eiga sæti fulltrúar frá háskólum, kenn- araskólum og fræðslustjórnum í héraði, en samvinnu- nefndirnar skyldu bera ábyrgð fyrir yfirstjórn fræðslu- málanna (Board of Education) að því er varðar próf og kennsluréttindi. Nefndarhlutinn lagði til, að samvinnu- nefndirnar yrðu endurskipulagðar og faliln ábyrgð á svæðaskipuninni á kennaramenntuninni, (area training service), þar sem kennaradeildir háskólanna og kennara- skólarnir skyldu halda sjálfstæði sínu, en ýmsar ráð- stafanir verða gerðar til þess að efla gagnkvæma hjálp og samvinnu1). En nefndin var öll á einu máli um það að lengja kennaranámið úr tveimur árum í þrjú, og hæf- um mönnum, þótt eigi hefðu þeir háskólapróf, skyldi gef- inn kostur á eins árs sérnámi í háskóla, og öðrum skyldi einnig veitt færi á námskeiðum, mislöngum eftir því, hver reynsla þeirra og nám væri.2) í þessari síðustu málsgrein felst viðurkenning á því, að kennarar geti lokið akademisku fullnaðarnámi án þess að hafa fylgt hinum venjulega akademiska námsferli. 1) Þessir kennaraskólar eru í tengslum við institiutes and schools of education", sem almennt eru kölluð Area training organizeations. Nær hvert þeirra yfir ákveðið svæði, og er háskóli á hverju þeirra. Flestar þessar stofnanir eru á háskólastiginu og í öllum þeirra gætir mjög áhrifa frá háskólunum. Sbr. Becoming a teacher. Ministry of Education, London, 1958, bls. 7. 2) D. J. Beattie et al.: The New Law of Education, London 1944, bls. 49.