MENNTAMÁL 167 Hér var vitnaS í álit opinberrar nefndar. En auk þess mun ég kynna hér í litlu viðhorf oddvita brezkra kennara um þessar mundir, Sir Ronalds Gould. Hann er aðalritari í National Union of Teachers í Englandi og forseti al- þjóðasambands kennara (W.C. O. T. P.). Má því telja, að vart hafi samtök kennara falið einum manni meiri trún- aðarstörf. Á páskum 1958 flutti sir Ronald ræðu yfir brezkum skólaráðum í Scarborough. Var erindið flutt með hliðsjón af fyrirhugaðri lengingu náms í brezkum training colleges úr tveimur árum í þrjú. ---------Ég hef nú gert nokkra grein fyrir því, að kennarar þeir, sem ekki hafa lokið háskólaprófi, þarfnast þjálfunar og menntunar, sem sambærileg er við menntun háskólagenginna manna, en háskóla- gengir kennarar eru 3 ár í almennri háskóladeild og bæta síðan einu ári við í kennaradeild. Þetta ætti að verða lokamarkmið allra kennara. Þeir ættu allir að hljóta fjögurra ára menntun. Af þessu þarf þó ekki að leiða, að allir kennarar taki háskólapróf. Sumar þær námsgreinar, sem kennarar stunda í kennaraskófunum, myndu ekki verða þær sömu og að jafnaði eru teknar til háskóla- prófs, t. d. kennsla tornæmra barna og fatiaðra barna. Hana mætti stunda til jafns við hverja háskólagrein, enda þótt háskólar teldu hana ekki eðliiega prófgrein. Lokamarkmið allra kennara ætti að vera fagleg þjáifun ásamt með háskólaprófi eða að öðrum kosti fagleg þjálfun og nám í almennum námsgreinum, í umtaki og að dýpt, sambærilegt við háskólanám. Sú hætta vofir yfir í dag, að ýmsir geri sig ánægða með skamma áfanga fram á við. En ég er ekki í þeim hópi. Ég ætlast til, að kennari með þriggja ára nám að baki komist eins nærri námstigi háskóla- genginna manna og kostur er. Eg vænti og, að þau ráð verði fundin, að karlar og konur með þriggja ára kennaranám að baki geti náð fullgildu háskólastigi að þriggja ára náminu loknu. 1) Sir Ronald Gould: A teacher looks at the three years course. N. U. T. London 1958.