168 MENNTAMÁL Við skulum taka þessi atriði til nánari athugunar. í fyrsta lagi: Getum við aukið menntun kennara með þriggja ára nám án háskóla- prófs, svo að þeir náigist sem frekast má menntun manns með há- skólaprófi að fjögurra ára námi loknu? Ef háskólaprófið krefst þriggja ára náms í almennum greinum og eins árs í uppeldisgreinum að auki, þá trúi ég, að ókleift sé að ljúka kennaranámi og háskólaprófi á þremur árum. Einhverju verð- ur að fórna, en hverju og hve miklu? Það er ekki hægt að draga úr námi í uppeldisgreinum. Það skiptir höfuðmáli, að kennarar skerði aldrei hina faglegu og hagnýtu undirstöðu starfsgreinar sinnar, meti hana aldrei lítils. Hún er meginatriði í öllu hversdagsstarfi okkar í bekknum. Það er hún, sem greinir kennslu frá öðrum störfum. Ef hún skiptir ekki máli, er engin von til þess að nokkurn tíma verði litið á kennslu sem sérstakt starf, því að dyr skólanna munu þá standa opnar jafnt fyrir sérlærðu og ólærðu fólki. í stuttu máli sagt: fyrir hverjum, sem hafa vill. Af þessu er ljóst, að takmarka verður almenna námið. Þess er enginn kostur að ljúka á þremur árum faglegu námi og námi i þrem- ur greinum á háskólastigi. Af þessum sökum hefur N. U. T. lagt til, að sérhvert kennaraefni taki a. m. k. eina almenna grein sem í há- skóla væri. Þetta teljum við vera hógværa kröfu. En sumir hyggja vonlaust, að unnt sé að fullnægja henni. Að sjálfsögðu er þetta hærra stig en nú er krafizt. En með hæfu kennaraliði, húsakosti og kennslu- tækjum í kennaraskólunum eigum við ekki að láta okkur neitt minna nægja. En þegar við höfum komið á þriggja ára námi kennara ætti svæða- skipulagið að veita tryggingu fyrir, að sérhver fullmenntaður kennari nái háskólaþekkingu í einni námsgrein a. m. k., og skal það vera skilyrði fyrír því, að hann hljóti fulla viðurkenningu. En hvernig á þá að komast yfir þessa auknu menntun? Eða svo að ég sé nákvæmari í orðavali: Hvernig á að ná háskólaþekkingu i a. m. k. einni námsgrein? Til er eitt almennt svar við þessari spurn- ingu. Taka verður upp i öllum kennaraskólum hliðstæð inntöku- skilyrðí og í háskóla eða sem næst því. Sömu afstöðu skal og hafa til nemenda, sömu kennsluaðferðir og sömu námskröfur og í há- skólum. Og þá mun ég fara nokkrum orðum um hitt atriðið. Hvaða ráð höfum við til þess að sumir þeir, sem lokið hafa kennaranámi, geti náð fullri háskólamenntun. Sumir kennaraskólar verða að gefa einhverjum hluta stúdentanna 1960 kost á fjögurra ára háskólanámi. Ég trúi þvi, að þetta sé mjög