170 MENNTAMÁL indum, þ. e. réttindum þeirra til að kenna í efstu bekkjum níu ára samfellda skólans. Hún segir m. a.: Yfirleitt mun verða krafizt adjunktsstöðu til þess að kcnna í Ung- domsskolen".1) Unnt á að vera að öðlast þessa menntun með sveigjanlegu kerfi, þannig að tengd eru próf úr kennaraskólum, háskólum eða sérkenn- araskólum. Meginsjónarmiðið verður, að námið komi skólunum að umtaki og gildi að sama gagni og cand. mag.-próf ásamt prófi í upp- eldisfræði (pedagogisk eksamen), eða þá almennt kennarapróf og tveggja ára viðbótarnám. Þetta nám á að veita adjunkts-réttindi. Eftirfarandi kostir verða sennilega á þvi að öðlast kennarastöðu í ungdomsskolen": a) Embættispróf af lægri gráðu" (cand. mag.) úr heimspeki- og sögudeild eða stærðfræði- og náttúrufræðideild, ásamt prófi í upp- eldisfræði. b) Kennarapróf og tvö stig í aðalnámsgrein, svarandi til tveggja ára náms (to grunnfagsenheter eller emneeksamener). c) Kennarapróf og eitt stig í almennri námsgrein, svarandi til eins árs náms, og próf úr sérkennaraskóla. d) Kennarapróf og próf eftir tveggja ára sérkennaranám hið minnsta. e) Kennarapróf frá kennaraskóla, sem hefur auk þess veitt eins árs viðbótarnám (sérnám eftir hið almenna kennaranám eða sérnám í og með hinni almennu kennaramenntun), og eitt stig af því tagi, sem að framan er talið, og svarar til eins árs hið minnsta. f) Önnur innbyrðistengsl þeirra kosta með þremur einingum eða stigum, sem að framan eru taldir, og svara til þriggja ára náms hið minnsta, ásamt prófi í uppeldisfræði. Að því er varðar tveggja ára kennaranám stúdentanna og fjög- urra ára kennaranámið, er það höfuðkrafa, að þetta tvenns konar nám skuli metið að jöfnu, bæði við embættaveitingar og mat á sjálfri menntuninni. Það veldur nokkrum vandkvæðum, þegar leita skal upptöku við universitetet eða högskolan, að annar kennarahópurinn hefur stú- dentspróf, en hinn ekki. Kennaraháskólinn í Þrándheimi veitir báð- um hópunum jöfn réttindi til náms. Við hina háskólana og uni- 1) Ungdomsskolen á að taka yfir sjö-, átta- og níu-ára bekki eða e. t. v. aðeins átta- og níu-ára bekki í níu ára enhetsskola. Sbr. Skola och Samhalle, 7/8 hefti '59 bls. 202. j}r. r