MENNTAMÁL 171 versitetet eru tök á því að komast inn án þess að hafa stúdentspróf, og eru fyrirmæli um það í lögum háskólans í Osló frá 9. des. 1955, 34. paragraf 3. málsgrein: Samme adgang (dvs. rett til á bli immat- rikulert) kan pá særskilt söknad ogsá gis andre, sem har erhvervet en utdannelse som departementet etter innhentet uttalelse fra kollegiet finner egnet som grunnlag for et universitetsstudium." Samkvæmt þessu má veita mönnum réttindi til háskólanáms, þegar sannanlegt er, að almenn menntun þeirra er sambærileg við stúdents- próf. Einsætt er, að hinum sérstöku kröfum um undirbúningsmennt- un, sem nauðsynlegar verða að teljast í væntanlegu sérnámi, verður að fullnægja í öllum námsgreinum við högskolen og universi- tetet. Þar sem hin almenna menntun, sem fjögurra ára kennaraskóli veitir, er svo víðtæk og rækileg (av sá hög standard), er sanngjarnt að benda liáskólunum á, að hún er fullkomlega jafngild stúdents- prófi, að undanskildu málanámi. Það ætti að vera gerandi að veita kennurum með f jögurra ára nám heimild til að fylgja kennslu í háskólum án viðbótarnáms og ljúka þar prófi og fá þetta próf viðurkennt sem faglega einingu, þegar úr- skurðað er um kennararéttindi. I þessum afbrigðum dæmdist prófið ekki vera liður í háskólamenntun, heldur scrpróf í kennaranáminu. Með viðbótarnámi í ensku í fjögurra ára kennaranáminu, en nokk- urri tilhliðrun um stúdentsprófsskröfur við háskólana að því er varð- ar frönskukunnáttu, ættu allir þeir, sem lokið hafa kennaranámi, að eiga kost á því að stunda nám við háskóla okkar án sérstakra tak- markana, en álierzla yrði lögð á sérstakar kröfur um undirbúnings- menntun fyrir sérnámið. Ýmsar stofnanir munu verða aðilar að framhaldsmenntun kennara. í fyrsta lagi kennaraskólarnir sjálfir með því að hafa þriggja ára og fimm ára línur með eins árs sérnámi. Skal hver einstakur kennara- skóli velja eitt eða fá sérsvið, sem hann hefur kennaralið og tæki til að gegna. Yfirleitt ætti sérnámið ekki að hefjast fyrr en á síðasta náms- ári, svo að kennaraskólanemar af öllu landinu geti valið um hina sérstöku kosti, eflir að þeir hafa kynnzt kennarastarfinu. I einstökum greinum, er reyna á þroska og tækni, mun þó vera heppilegra að taka sérnámið á lengri tíma en einu ári, svo sem tón- listarlínan í Bergen er gott dæmi um. . . . (Þriggja ára lína. Þýð.) Það verður að meta eftir almennum þörfum, hverjar sérgreinar henta við einstaka skóla með hliðsjón af kennaraliði, sem þar er eða kostur er á. Kennarar þeir, er ábyrgð bera á kennslu í sérgreinum, skulu vera jafnokar háskólakennara að hæfni.