172 MENNTAMÁL Dr. Nordland lýkur grein sinni með þessum orðum: Við höfum eygt tækifæri og leiðir, og við munum notfæra okkur þau, eftir því sem okkur vex afl til. Við verðum að koma á sam- vinnu ailra starfandi manna i kennaraskóiunum, universitetet og högskolan og öðrum stofnunum, sem veita kennaramenntun fyrir skyldustigið. Gagnkvæmt starf og gagnfrjóvgandi samvinna mun auka mjög á kost þjóðfélagsins á því að gera hina uppeldisfræðilegu við- leitni að veruleika og færa almenningi þau verðmæti, sem löggjöfin um hinn nýja samfellda skóla hvílir á.]) I ritstjórnargrein í Norsk skuleblad frá 2. apríl 1960-) er sú krafa borin fram, að kennaraefni hafi lokið almennu undirbúningsnámi, áður en þau hefji kennaranám. Vera má, að sjónarmið norsku kennarastéttarinnar komi hér fram, þar sem um er að ræða ritstjórnargrein í málgagni kennarasamtakanna norsku. Þar segir: Kennarastarfið er svo mikilvægt og gerir svo sérstæðar kröfur, að nauðsynlegt er að einbeita kennaranáminu að uppeldisgreinum (það er heimspeki, sálarfræði, uppeldisfræði, kennslufræði, kennsluæfing- um, heilsufræði, skólaiöggjöf, skóiastjórn). Kennaraefnin skyldu yfirleitt hafa lokið hinu almenna námi, áður en þau byrja á kennar.anáminu. Ýmsum mun sýnast, að þessi krafa jafngildi því, að almennt sé krafizt stúdentsprófs undir kennara- námið. Sú er líka stefna vor. En það skref er ekki unnt að stíga í dag að krefjast stúdentsprófs undir kennaranámið, en önnur leið er fær. Það mætti taka upp sér- stakt undirbúningsnámsskeið undir kennaraskólana fyrir þá nemend- ur, sem ekki hefðu stúdentspróf. Þá verður þess kostur að ieggja áherzlu á hið uppeldisfræðilega nám í kennaraskólunum með allt öðrum hætti en nú er gert. Einnig verður að leggja meiri áherzlu á að temja nemendum sjálfstæða hugs- un og sjálfstætt starf. Þá ber nauðsyn til að haga kennslu með öðrum hætti en nú tíðkast, en líkar því, sem tltt er í háskólunum, með föst- um fyrirlestrum, rannsóknum, æfingum, rökræðum, kennsluæfingum og sjálfstæðu námi. Nokkrar aðalnámsgreinar verða að vera skyldunámsgreinar, en nemendur skyldu eiga kost á að velja um einstakar aukanámsgrein- 1) E. Nordland: Lærerutdanning for 9-árig Skole. Norsk Skuieblad. nr. 38, 1960. 2) Lærerutdanninga. Norsk Skuleblad, nr. 13, 1960.