MENNTAMÁL 179 á. Ég tek hér örfá dæmi til aS gera Ijóst, hvers við þykir þurfa meðal frændþjóða og granna. I Svíþjóð telst mér til, að ætlað sé sem nemur 100 dög- um til verklega námsins, ef með er talið kennslufræði al- menn og kennslufræði einstakra námsgreina, en þeir meta eina vikustund vetrarlangt til jafns við 6 daga. 1 f jögurra ára kennaraskólum í Svíþjóð skal í 2. bekk verja 12 dög- um til að heimsækja skóla pg hlusta á kennslu, í þriðja bekk 18 dögum í heimsóknir í skóla og æfingakennslu og í fjórða bekk 54 dögum. í þriðja bekk skal hver nemandi kenna þrjátíu kennslustundir, og í fjórða bekk 66.*) I Danmörku er svo fyrirmælt í lögunum frá 1954, að kennaraefni skuli njóta hið minnsta þriggja mánaða æf- ingakennslu samtals.2) Þá skulu kennaraefni njóta styrks þennan verklega æfingatíma. í Englandi eru kröfurnar áþekkar. í McNair-álitinu er m. a. bent á eftirfarandi: Hvergi er varið skemmri tíma en tólí' vikum til verklegs kennara- náms. En það felur í sér fullgilda kennslu um langan tíma, að skólar eru heimsóttir, athuganir gerðar og fylgzt með sýnikennslu. Við teljum, að framvegis eigi verklegt kennaranám að vera með tvennum hætti, og skal þess krafizt af öllum kennaraefnum, er eiga kost á að stunda það. Fyrra afbrigðið mætti kalla hagnýta þjálf- un í skólum og hið síðara samfellda æfingakennslu. í fyrsta lagi á verklega kennaranámið að veita hlutstæða, ótvíræða reynslu, dæmi og skýringar og auka við og leggja áiierzlu á hina fræðilegu hlið kennaranámsins. Skólarnir eru verkstæði kennaranem- anna og vettvangur lifandi reynslu. Verklegt kennaranám af þessu tagi á að fela í sér svo sem nú er hlutfallslega dreifða kennslu og atliuganir í skólum og heimsóknir í uppeldisstofnanir og minni háttar rannsóknir. Þessi tegund kennaranáms krefst fjölbreyttrar, auðveldrar innkomu í ýmsa skóla og sveigjanlegs skipulags og skyldi vera órofaþáttur náms í uppeldisfræði. í öðru lagi á verklega kennaranámið að veita kennaraefninu að- stöðu til þess að fullreyna, hvað það er að vera kennari. Það er 1) Sem. Org. II, bls. 173-174. 2) Lov nr. 220 af 11. júní 1954 om uddannelse af lærer til folke- skolen, paragraf 23, 1. málsgr.