MBNNTAMÁL 181 efni falla undir menntamálaráðuneytið og þarfir sérfram- færslunnar, sem lýtur stjórn félagsmálaráðuneytisins. Þannig hafa tvö ráðuneyti samvinnu um þennan þátt kenn- aramenntunarinnar. Kennarar í hjálparbekkjum eru líka menntaðir á námsskeiðum í kennaraháskólanum. Svíþjóð. Svíar hafa menntað sérkennara sína á ýmsum náms- skeiðum hingað og þangað, líkt og tíðkazt hefur í Noregi. Sameiginleg námsskeið fyrir kennara í hjálparbekkjum og kennara vangefinna barna hafa verið haldin í Stokk- hólmi og Gautaborg. Lengi hefur þó ríkt óánægja um þessa skipan og samband sænskra sérkennara hefur þrá- faldlega lagt til og unnið að því, að komið væri á fót Specialpedagogisk institut. Frá 1. okt. síðastliðnum fól fræðslumálastjórnin Helmer Norman umsjón með mennt- un kennara í hjálparbekkjum, lesbekkjum, athugunar- bekkjum sem og kennara tornæmra barna, og hefur hann rektorsnafnbót. Finnland. Árið 1959 komu Finnar allri menntun sérkennara fyrir við kennaraháskólann í Jyváskylá, undir stjórn Niilo Máki. Þar ljúka menn sérkennaraprófi að undangengnu almennu kennaraprófi og tveggja ára kennarastarfi. Sér- kennarapróf veitir rétt til að starfa í hjálparbekkjum, at- hugunarbekkjum og öðrum sérbekkjum. Vestur-þýzka sambandslýðveldið. 1 Vestur-þýzka sambandslýðveldinu er frábærilega vel séð fyrir menntun sérkennara, og Hamborg hefur þar for- ustuna, en þar er kostur á fjögurra ára sérnámi. Algeng- ast er þó, að sérkennarar njóti tveggja ára menntunar. Allir sérkennarar skulu hafa lokið almennu kennara- námi, en það er þriggja ára nám eftir stúdentspróf.