MENNTAMÁL 185 eðlilegt að skipa nær öðru sérnámi en akademisku sérnámi. Og það eru engar líkur á því, að næstu árin verði önnur stofnun færari um það en Kennaraskólinn að veita íslenzk- um kennurum á skyldunámsstigi fullnaðarmenntun, hvort heldur er í almennu kennaranámi eða sérlegu, og eru þá undanskildir þeir sérkennaraskólar, sem nú starfa. Kennaraséttin og þjóðin öll mun ekki komast óhappa- laust frá því að gleyma, að öll réttindi kennarastéttarinnar til starfs, frekara náms og bættra kjara eiga að vera af- leiðing af verkhæfni hennar, af menntun hennar, af góðri kennaramenntun. Það er mál að linni hvískrandi og kall- andi hnjóði um kennara, menntun þeirra og skóla, og er þó sjálfsrógurinn verstur. SITT AF HVERJU S. í. B. 40 ára. Samband ísl. barnakennara er 40 ára gamalt á þessu ári. Verður þess minnzt í næsta hefti. Samríorrcent kennarandríiskeiÖ í Káupmannahöfn 2.-6. ágúst 1961. Norræna menningarnefndin hefur mælzt til þess við kennarahá- skólana á Norðurlöndum, að efnt yrði til námskeiðs fyrir kennara. Rektorar kennaraháskólanna hafa ákveðið að námskeiðið skuli hald- ið í Kaupmannahöfn 2.-6. ágúst 1961 að báðum þeim dögum með- töldum. Aðalviðfangsefnið á námskeiðinu verður sjálfstætt starf nemenda og hlutverk þess í kennslu barna á aldrinum 714 ára. Fjallað verður um frumatriði starfræns uppeldis með fyrirlestrum og annars kyns kennslu, m. a. verður rætt um kosti og takmarkanir flokkavinnu í móðurmálskennslu, skrift, teikningu, reikningi, náttúru- fræðilegum greinum og ensku. Frekari upplýsingar má fá hjá Samnordisk Jærerkursus í K0benhavn, 2.-6. august 1961. Danmarks Lærerkojskole, Emdrupvej 101, Kóben- havn N.V. eða fræðsluniálaskrifstofunni, Reykjavík.