ÚTSÝN tíl annarra landa Heiminum má likja við stóra bók. Þeir, sem aldrei ferðast að heiman, lesa aðeins eina siðuna." Agústus keisari. Þessar ferðir eru skipulagðar sumarið 1961: EDINBORG-LONDON: 25. júní-6. júlí - róleg, ódýr ferð með m/s Gullfossi gott tækifæri að kynnast heimsborginni. KAUPMANNAHÖFN-HAMBORG-RÍNARLÖND-SVISS- PARÍS: 5.-29. ágúst ódýr en skemmtileg ferð til margra fegurstu og eftirsóttustu staða álfunnar. ÍTALÍA og SUÐUR-FRAKKLAND: 8.-29. sept. - glæsileg ferð um fögur sólarlönd á bezta árstíma. Athugið, að margir taka þátt í ferðum Útsýnar ár eftir ár, vegna þess að þeir þekkja af eigin raun, að með því móti verður ferð þeirra ódýrari, þgilegri og skemmtilegri. Allar nán- ar upplýsingar veittar í skrifstofu félagsins kl. 57 síðdegis á virkum dögum. FERÐAFÉLAGIÐ ÚTSÝN Nýja Biói, Lkjargötu 2