XXXIV. 3. SEPT.DES. 1961 DR. GYLFI Þ. GÍSLASON, menntamálaráðherra: Hlutverk skólans á tækniöld. Ræða á 18. norræna kennaraþinginu % Kawpmannahöfn 1961. Mér er það ánægja að flytja mótinu kveðju frá Islandi og hinum íslenzku þátttakendum. Mér er það sérstök ánægja að flytja gestgjöfum okkar, Dönum, hlýja kveðju handan yfir svalt hafið. Það er langt milli landa okkar. En ég held, að þjóðir okkar hafi aldrei staðið nær hvor ann- arri en nú í dag. Á Islandi er nú ríkjandi einlægari vinátta í garð Dana og dýpri virðing fyrir menn- ingu þeirra en nokkru sinni fyrr. Og samt veit ég, að hvort tveggja á enn eft- ir að vaxa. Allir eru sammála um, að skólar og kennarar gegni mikilvægu hlutverki í nútíma þjóðfélagi og að þýðing þeirra fari sívaxandi. Oftast heyrist sagt, að orsökin sé sú, hversu þekkingin vaxi ört, að tímar kjarnorku og geimfara krefjist aukins lærdóms, meiri þjálfunar. Þetta