MENNTAMAL 237 JÓNAS B. JÖNSSON: Tómstundir og tómstundaiðja íslenzkra ungmenna. Erindi flutt á 18. norræna kennaraþinginu í Khöfn 1961. Frá ómunatíð hefur ósk mannsins og þrá eftir frí- tíma eða tómstundum ver- ið einna áleitnust og al- mennust allra óska, sam- tvinnuð þörfinni á hvíld og nátengd leiða á sífelldu og endalausu striti fyrir daglegum þörfum. Sífellt, ár og síð, öld af öld hefur þessi sterka þrá miskunn- arlaust knúið manninn áfram á braut framfara og tækni til þess að létta af honum þyngsta okinu. Sú braut var löngum mik- ið torleiði, en nú virðast menn standa á vega- og tímamótum, allar gáttir opnar og flestar leiðir færar svo langt fram á veg sem ímynd- unaraflið hrekkur til. Löngum var það svo, að fáir einir áttu kost nokkurra tómstunda. í sögum elztu þjóðfélaga kemur skýrt í ljós, að einungis mjög fámenn yfirstétt naut þeirra forréttinda, Jíhias B. Jónsson.