240 MENNTAMÁL Skoðanakönnunin leiddi í ljós, að 96fc nemenda í 2. bekk gagnfræðastigs líkaði skólavistin vel eða ágætlega, og að- eins 3,3% undi þar illa sínum hag. Oft heyrist talað um skólaleiða og námsþreytu, og er stundum talað um nem- endur sem hálfgerða píslarvotta skólakerfis og fræðslu- laga. Slíkt tal er næsta oft mjög yfirborðskennt og lítt hugsað. Mistök í skólastarfi eru oftar sök einstaklinga fremur en skólakerfis. Hitt er satt, að nemendur vinna verk, sem venjulega er erfitt og lýjandi, og þurfa því bæði góða hvíld og tilbreyt- ingu. Svo er líka að sjá sem þeir hafi nokkurn tíma til að sinna eigin hugðarefnum til dæmis horfa á kvikmyndir, fara í leikhús og hljómleika, hlusta á útvarp, spila, tefla og stunda margháttuð félagsstörf. Má til dæmis nefna, að 777' horfa á leiksýningar og margir sækja hljómleika, söngskemmtanir og fleira þess háttar. Þeir hlusta mikið á útvarp, helzt fréttir og getraunaþætti, 88% þeirra spila á spil, og 65 (/o kunna að tefla. En ekki má gleyma því, að um 80% sækja kvikmyndahús einu sinni á viku eða oftar, en áhrif kvikmynda geta verið á ýmsan veg, eins og öllum er ljóst. Þátttaka í ýmiss konar æskulýðsfélögum verður að telj- ast mikil, til dæmis eru um 50 % þessara unglinga í skáta- félögum, stúkum og K.F.U.M. og K. Fjöldi er og í ýmiss konar íþróttafélögum. Nýlega var sett á laggirnar nefnd, Æskulýðsráð Reykja- víkur, sem starfar að því í samvinnu við skólayfirvöld bæjarins, að leiðbeina æskufólki og aðstoða það við tóm- stundastörf, og eru margir starf shópar og klúbbar á veg- um þess á vetrum. Er þar fyrst og fremst lögð áherzla á hagræn störf og menntandi, haldin námskeið í margs konar starfsgreinum og tómstundaiðju. En einnig hafa skólarnir á sínum veg- um ýmiss konar tómstunda- og félagsstörf. Hafa meðal annars um 40% fjórtán ára unglinga leikið í sjónleikjum