MENNTAMÁL 241 innan skólanna, og dans er mikið iðkaður, enda kenndur víða í skólum. Þá vinna nemendur eitthvað lítils háttar með náminu, eða um 11% af 14 ára unglingum. Er þar einkum um að ræða sendlastörf og útburð dagblaða. Samkvæmt framan sögðu má ætla, að reykvískir ung- lingar hafi yfirleitt nógu að sinna yfir skólatímann og oft ærinn vinnudag. Má fremur óttast, að svefninn og hvíldin séu í minna lagi, meðal annars af því, að almenn- ingi virðist ekki ljóst, að þeir, sem vinna andleg störf, er liggja af öllum þunga á taugakerfinu, þurfa ekki síður hvíld en hinir, sem vinna hina svokölluðu erfiðisvinnu. Næg hvíld og hæfilegur svefn mundi vafalaust draga úr því eirðarleysi, sem virðist þjá nokkurn hóp ungmenna, og hugur þeirra þá fremur beinast til hollra tómstunda- starfa. Ég vík þá máli mínu að þeim þætti í tómstundastörfum námsfólks, sem er sérkennandi fyrir Island, en það er sumarvinnan. Svo sem fyrr er að vikið, er sumarleyfi 1012 ára barna og allra unglinga í Reykjavík fullir fjórir mánuðir eða júní, júlí, ágúst og september. Hefur löngum þótt sjálf- sagt, að skólafólk ynni þennan tíma, eins og við yrði komið, og er svo enn. Stálpaðir piltar, sextán ára og eldri vinna margir að mestu leyti eða öllu fyrir sér, ef þeir fá góða sumarvinnu, og f jöldi unglinga vinnur ýmiss kon- ar létt störf bæði til sjávar og sveita. Fer kaupgreiðsla þá eftir atvikum, til dæmis fer margt kaupstaðarbarna til sumardvalar í sveit ár hvert, og vinna sum fyrir sér og vel það, en önnur ekki, þau sem ung eru. Tæp 75% þeirra reykvískra unglinga, sem luku skyldu- námi í vor, höfðu einhvern tíma dvalizt í sveit. Við könn- un þá, sem áður er getið, kom í ljós, að 96% unglinganna stundaði vinnu og fékk goldið kaup. Þeir fáu, sem ekki unnu, voru annaðhvort á ferðalagi erlendis eða veikir. 16