244 MENNTAMÁL En ýmsar aðrar breytingar kunna að hafa orðið á ís- lenzkri æsku síðustu ártugina, og væri það ekki að undra, slíkum stakkaskiptum, sem þjóðfélagið hefur tekið á þess- um tímum. En þær breytingar verða ekki mældar í senti- metrum eða kílógrömmum og naumast heldur með gáfna- prófum. Gamall og reyndur skólamaður sagði nýlega við mig, að sér fyndist hafa dofnað yfir þeim hugsjónum, sem mest bar á meðal æskufólks á fyrstu áratugum þessarar aldar, fjarlæg og háleit markmið hefðu þokað fyrir hagsýnni rökhyggju stundarinnar og umhyggju fyrir eigin hag. Ekki skal ég dæma um, hversu mikið þessi vinur minn hefur til síns máls, en líklega nokkuð, og má þá eflaust finna því eðlilegar skýringar. Sú er samt von mín, að saman megi fara hjá íslenzkri æsku skynsamleg hagsýni og einlæg tryggð við góðar og göfugar hugsjónir. Er það ósk mín til handa öllu æsku- fólki á Norðurlöndum.