246 MENNTAMAL Smíðastofa í barnaskólanum í Kársnesi, Kópavogi. sé einhvers konar geymsla eða ruslakompa í kjallara eða afhýsi skólans. Varla eru skiptar skoðanir um gildi og gagnsemi handa- vinnukennslunnar, ef rétt er á haldið, en það er því aðeins hægt, að skilyrði séu forsvaranleg. í smíðastofunni þurfa að vera hefilbekkir fyrir hvern nemenda svo og kennaraborð, beztu bekkirnir eru tví- mælalaust eins manns bekkir. Skápar undir verkfæri þurfa að vera góðir og hentugir. Hæfilegt er að hafa einn skáp fyrir f jóra nemendur, svo og stóran skáp fyrir sameiginleg verkfæri. Tafla og handlaug þurfa að vera í hverri stofu. Skápar undir verkefni í munageymslu þurfa að vera rúmgóðir, einn eða fleiri fyrir hvern bekk. Það gerist of oft, að munir drengja skemmist eða tap- ist vegna þrengsla í skápum og stofum. Er slíkt oft mikið áfall fyrir nemanda, sem er áhugasamur og iðinn við sitt verk.