272 MENNTAMÁL INGIBJÖRG STEPHENSEN: Málhölt börn. Um athuganir á málgölliim 712 ára barna í 22 skólum utan Reykjavíkur. Á síðastliðnu hausti var ég undirrituð sett af Mennta- málaráðuneytinu, frá 1.9. 1960, um eins árs skeið, til þess að annast tallækningar og kennslu málhaltra í skólum utan Reykjavíkur í samráði við skólayfirlækni og fræðslu- málastjórnina. Var síðan ákveðið, að ég skyldi fara um landið og heim- sækja sem flesta af hinum stærri barnaskólum, kynna mér ástandið í þessum málum og gefa leiðbeiningar um með- ferð málhaltra barna eftir þörfum. Skólar þeir, er ég heim- sótti, 22 að tölu, eru skráðir hér á eftir. Starfstíminn við þessar athuganir var frá október 1960 til maí 1961, en nokkur þeirra barna, sem skráð voru í vetur, hafa séð sér fært að sækja taltíma í sumar hér í Reykjavík, þótt flest hafi ekki átt þess kost. Hef ég þegar brautskráð þrjú þeirra, en nokkur sækja ennþá tíma. Auk þess hafa all- mörg börn komið til nánari rannsóknar um lengri eða skemmri tíma, en ekki séð sér fært að sækja kennslu reglu- lega að svo stöddu. Á rannsóknarf erðalögum mínum í vetur naut ég ómetan- legrar aðstoðar skólastjóra og kennara við hina ýmsu skóla, en að jafnaði var sá háttur á, að þeir bentu mér á þau börn, er þeir álitu þurfa athugunar við, sökum mál- galla eða málhelti. Á þennan hátt fékk ég til rannsóknar öll þau börn, sem höfðu nægilega alvarlega málgalla til að þarfnast meðferðar, auk margra annarra, sem mér þótti ekki ástæða til að taka með á skýrslu að sinni.